
Kristbjörg Þorkelína – saga leikkonunnar Kristbjargar Kjeld
1.290 kr.Fáar leikkonur eiga að baki jafnglæsilegan feril og Kristbjörg Þorkelína Kjeld. Hún hefur lengi verið ein dáðasta leikkona þjóðarinnar. En hvað hefur mótað þessa konu? Hvað beindi henni, ungri stúlku úr Njarðvík, upp á fjalir Þjóðleikhússins? Hver er list Kristbjargar Kjeld? Jórunn Sigurðardóttir ræðir við þessa merku konu um viðburðaríka ævi og afstöðu hennar til listarinnar. Þetta er áhugaverð bók um forvitnilega konu.
