
Bjargvætturinn í grasinu
990 kr.Bjargvætturinn í grasinu (The Catcher in the Rye) er löngu viðurkennd í hópi merkustu skáldsagna á þessari öld. Vel gefinn sextán ára piltur týnir áttum. Hann stingur af frá skóla og fjölskyldu og ráfar út í myrkvið New York borgar. Að bjarga öðrum í svipaðri aðstöðu er hið eina sem hann getur hugsað sér að leggja stund á – eða svo segir hann.
Sagan fjallar á óvæginn hátt um öfgar gelgjuskeiðsins, enda var hún umdeild í fyrstu. En fljótlega sáu lesendur að hér var hvorki ofsagt né vansagt.
Bókin er afar vandþýdd vegna unglingamáls og slanguryrða og er þýðing Flosa Ólafssonar á henni sannkallað þrekvirki.
