
Mynd örlaganna
1.290 kr.Isabel Allende hefur nú skrifað sjálfstætt framhald hinnar geysivinsælu sögu, Dóttir gæfunnar, og myndar þá þessi bók miðsöguna í þríleik sem endar á Húsi andanna, fyrstu bók Allende. Sú sem hér segir frá er Aurora del Valle, barnabarn Elísu Sommers og hins kínverska læknis Taos Chi’en. Sagan gerist bæði í San Francisco og Chile og við sögu koma meðal annarra undurfögur en ógæfusöm móðir Auroru, gerspilltur og lífsleiður faðir hennar, stórbrotin föðuramma og í fyllingu tímans eiginmaður sem býr yfir leyndarmáli og er þá fátt eitt talið af litríkum persónum sem fylla hér blaðsíðurnar eins og í fyrri bókum höfundar. Hér er sögð margþætt saga af stórbrotnum örlögum, ósviknum ástríðum og spaugilegum atvikum með samblandi af heitri samúð og stríðnisbliki í auga. Kolbrún Sveinsdóttir þýddi.


Eva Luna segir frá
1.990 kr.– Segðu mér sögu – segi ég við þig.
– Um hvað á hún að vera?
– Segðu mér sögu sem þú hefur engum sagt áður.Og Eva Luna segir ástmanni sínum, Rolf Carlé, tuttugu og þrjár sögur um jafnmörg tilbrigði ástarinnar. Hér segir af skuggalegum stigamönnum og háttprúðum hefðarmeyjum sem elskast með ærslum og glæframönnum sem stíga í vænginn við annálaðar sómakonur; tinandi gamalmenni hefja upp langþráð bónorð, mæðgur keppa um hylli farandsöngvara, draumar rætast og skýjaborgir hrynja. Sagt er frá klækjum og vélabrögðum, taumlausri ágirnd og takmarkalausri fórnfýsi og hvort sem sögurnar eru sóttar beint í furðulegan veruleika Suður-Ameríku eða framkallaðar með óþrjótandi ímyndunarafli skáldkonunnar eiga þær allar sammerkt að miðla ást á lífinu í öllum sínum fjölbreytilegustu myndum.
Isabel Allende hefur þegar öðlast hylli Íslendinga fyrir litríkar sögur sínar, Hús andanna, Ást og skugga og Evu Lunu, þar sem hún sameinar töfraraunsæi og skarpa samfélagssýn. Tómas R. Einarsson þýddi úr spænsku.

Sannleikur allífssins
1.990 kr.Gregory Reeves er aðalpersóna og annar aðalsögumaður þessarar margslungnu skáldsögu Isabel Allende. Hann er hvítur en elst upp meðal spænskumælandi fólks í Kaliforníu og reynir á sjálfum sér ýmsar öfgar bandarísks þjóðfélags, verstu og bestu hliðar þess, auk þess sem hann hrærist í sögulegu umróti áranna kringum 1968 og kynnist því helvíti sem Víetnamstríðið var. Í lifandi og spennandi frásögn sem full er af litríkum mannlýsingum og eftirminnilegum atvikum lýsir Isabel Allende andstæðum bandarísks þjóðfélags, upplausn fjölskyldunnar, leit einstaklinganna að lífsfyllingu og ást – leit Gregory Reeves að þeim „Sannleika allífsins“ sem hann heyrði föður sinn predika um sem barn.
Isabel Allende hefur notið mikilla vinsælda á Íslandi allt frá því fyrsta skáldsaga hennar Hús andanna kom út. Tómas R. Einarsson þýddi.




