• Mikilvægt rusl (notuð)

    Mikilvægt rusl (notuð)

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Mikilvægt rusl

    Mikilvægt rusl

    6.990 kr.
    Setja í körfu
  • Vince Vaughn í skýjunum

    Vince Vaughn í skýjunum

    Á internetinu geta allir orðið stjörnur. Áður óþekkt fólk er á allra vörum einn daginn en öllum gleymt þann næsta. Verðum við kannski öll heimsfræg í 15 mínútur eftir allt saman?

    Sara og Þórir – menntaskólastelpa sem vinnur í sundlaug og háttprúður Lottókynnir í sjónvarpinu – eru með öllu óviðbúin frægðinni þegar hún steypist yfir þau. Hann verður alræmdur á Íslandi, hún alþjóðleg stjarna. Hvernig bregðast þau við?

    Halldór Armand Ásgeirsson (f. 1986) er ný rödd í íslenskum bókmenntum. Leikrit hans Vakt var sýnt í Norðurpólnum 2010 við góðar undirtektir og í ár fékk hann nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir sögurnar í þessari bók.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Aftur og aftur

    Aftur og aftur

    Þegar Tvíburaturnarnir hrynja eignast unglings- strákur í Reykjavík farsíma og kynnist í kjölfarið fyrstu kærustunni. Á sama tíma lendir trommari í vinsælli sveitaballahljómsveit í bílslysi þar sem ung stúlka lætur lífið.

    Fimmtán árum síðar liggja leiðir þessara tveggja manna saman. Arnmundur er eirðarlaus ungur maður sem notar símann sinn til að komast yfir stelpur í útlöndum og drollar við að skrifa loka- ritgerð. Stefán hætti að tromma, varð útrásarvíkingur og rekur nú sprotafyrirtæki sem hann er viss um að geti breytt heiminum. Undir yfirborðinu krauma gömul leyndarmál, vonbrigði og hefndarþorsti.

    Sent from my iPhone

    Halldór Armand hlaut mikið lof fyrir Vince Vaughn í skýjunum og Drón. Aftur og aftur er áhrifarík og spennandi samtímasaga þar sem venjulegt fólk leitar að ást, hlýju og merkingu í óútreiknanlegum heimi.

    „Áhugaverðasti höfundur landsins. Íslenskar bókmenntir eiga sér ekki framtíð án hans.“
    STEINAR BRAGI

    „Í Aftur og aftur slær nakið hjarta nútímans.“
    SILJA AÐALSTEINSDÓTTIR

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Bróðir

    Bróðir

    1.290 kr.
    Setja í körfu