- -41%

Huldukonan
Original price was: 8.390 kr..4.990 kr.Current price is: 4.990 kr..Konurnar í Lohr fjölskyldunni skilja ekki að Sigvaldi þeirra, með alla sína augljósu mannkosti, hafi aldrei gengið út. Ennfremur fá þær ekki skilið þá fráleitu ákvörðun hans að gerast einsetumaður í eyðivík. Þær eru raunar hættar að hnýsast í hagi Sigvalda, því í hvert skipti verður augnaráð hans átakanlega tregafullt.
Dag einn birtist Sigvaldi á dyraþrepi móður sinnar með mánaðargamla stúlku í fanginu og neitar að svara því hver sé móðir barnsins. Konurnar í fjölskyldunni hefja sína eigin rannsókn á málinu og smám saman hrannast sönnunargögnin upp: saga Lohr ættarinnar, þjóðsögurnar í Dýrleifarvík, leyndardómur um týnt barn og móður sem hvarf, undarlegir draumar, óvenjuleg hegðun Sigvalda og dulmagn hamranna í hlíðinni.

The Mark
3.490 kr.The Icelandic Psychological Association has prepared a test. They call it a sensitivity assessment: a way of measuring a person’s empathy and identifying the potential for anti-social behaviour.
In a few days’ time, Iceland will vote on whether to make the test compulsory for every citizen. The nation is bitterly divided. Some believe the test makes society safer; others decry it as a violation.
As the referendum draws closer, four people – Vetur, Eyja, Tristan and Ólafur – find themselves caught in the teeth of the debate. Each of them will have to reckon with uncomfortable questions: Where do the rights of society end and the rights of the individual begin? When does utopia become dystopia?No matter which side wins, they will all have to find a way to live with the result.

Merking
1.290 kr.Skáldsagan Merking er margradda verk sem fjallar um afstöðu og pólaríseringu, fordóma og samkennd. Þjóðin er klofin í afstöðu sinni til samkenndarprófsins, byltingarkenndrar tækni sem spáð getur fyrir um andfélagslega hegðun; annar helmingurinn vill öruggara samfélag, hinn vill réttlátt samfélag. Aðalpersónur sögunnar hafa öll þurft að laga sig að nýjum siðferðisgrundvelli samfélagsins og fram undan er þjóðaratkvæðagreiðsla sem sker úr um hvort fólki verði gert skylt að gangast undir prófið. Fríða Ísberg gat sér góðan orðstír fyrir ljóðabækurnar Slitförin og Leðurjakkaveður, og smásagnasafnið Kláða sem tilnefnt var til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Merking er fyrsta skáldsaga hennar.
