• Límonaði frá Díafani

    Límonaði frá Díafani

    Ella Stína er átta ára þegar hún fer út í heim með fjölskyldunni. Í Grikklandi er allt með öðrum brag en heima á Seltjarnarnesi; eðlur skjótast um veggi, mandarínur og ólífur vaxa á trjánum, geitur ganga um með bjöllur um hálsinn og örsmáu bænahúsin í hlíðinni hljóta að vera sérstaklega fyrir krakka. Ella Stína skottast um allt með yngri bræður sína en foreldrarnir eru yfirleitt uppteknir við skriftir. Löngu seinna kemur Ella Stína aftur til Grikklands, hvað er þá orðið af sólbökuðu fjölskyldunni sem eitt sinn var?

    Elísabet Jökulsdóttir hefur sent frá sér fjölda bóka en sló nú síðast í gegn með Saknaðarilmi og AprílsólarkuldaLímonaði frá Díafani kallast sterklega á við þessar bækur um leið og farið er með lesendur í heillandi könnunarferð um bernskuna undir grískri sól.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Heilræði lásasmiðsins

    Heilræði lásasmiðsins

    „Ég svaf hjá í Central Park.“

    Þannig byrjar Elísabet Jökulsdóttir frásögnina af sambandi sínu við Algea, mann sem hún kynntist á ferðalagi í New York. Þetta er saga tveggja ólíkra einstaklinga sem mætast um stund, reyna að búa saman á Íslandi en hljóta svo að skilja. Hann er bandarískur, hún íslensk; hann er hattagerðarmaður og trommuleikari, hún er skáld; hann er stórborgarbúi, hún er náttúrubarn; hann er svartur og hún hvít.

    Þau eru falleg saman en það er snúið að vera manneskja. Bæði eiga erfitt með að skilja á milli ímyndunar og veruleika. Og ástin opnar líka ýmis herbergi sálarlífsins sem hafa verið lokuð lengi…

    HEILRÆÐI LÁSASMIÐSINS er einstök bók, skrifuð af einlægni og stílsnilld, brennandi löngun til að segja sögu – og ást.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • -33% Sjáðu, sjáðu mig. Það er eina leiðin til að elska mig.

    Sjáðu, sjáðu mig. Það er eina leiðin til að elska mig.

    Hér missir kona rödd og fær hana aftur. Mögnuð ljóðabók sem hefur verið ófáanleg lengi.

    Elísabet Jökulsdóttir er alvöru skáld. Hún horfir fast í augun á lesandanum og orðar sterkar tilfinningar; ást, heift, gleði og sorg, af oddhvassri blíðu og lífsþorsta, sýnir náttúru landsins á síkvikan hátt og lítur aldrei undan.

    Original price was: 5.190 kr..Current price is: 3.490 kr..
    Setja í körfu
  • Kattahirðir í Trékyllisvík
  • Ástin ein taugahrúga: enginn dans við Ufsaklett
  • Aprílsólarkuldi
  • Dans í lokuðu herbergi