• Sýrópsmáninn

    Sýrópsmáninn

    Ungur maður, sem missti vinnuna á Vísindavefnum fyrir að svara út í hött, heldur í sumarleyfi til Ítalíu ásamt eiginkonu og syni. Í farteskinu eru leifar af órædri þoku sem lagst hefur yfir Reykjavík og landið allt, minningar um ástir sem farið hafa forgörðum og sorgir sem aldrei hafa verið færðar í orð.

    Sýrópsmáninn er listilega skrifuð bók um fermingarmyndir í fjöru, boku sem mátar skó og hið tortimandi afl ástarinnar.

    Eiríkur Gudmundsson hlaut mikið lof fyrir síðustu skáldsögu sína Undir himninum, meðal annars sagði gagnrýnandi Morgunblaðsins: „Það er nautn að lesa textann og sagan er í senn fyndin, írónísk, persónuleg, kátbrosleg, ljúfsár og melankolísk.“

    „Þetta er skemmtilegur texti og furðulegur. Hann fengi í mínum kladda fimm stjörnur væru þær gefnar.“
    – Páll Baldvin Baldvinsson um Undir himninum

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • 1983

    1983

    Á hjara veraldar er tólf ára gamall drengur á hraðri ferð inn í heim hinna fullorðnu. Á einu ári uppgötvar hann ekki aðeins ástina heldur einnig hverfulleikann, um leið og hann vígist inn í heim orðanna.

    Hér er sögð nýstárleg saga úr íslensku þorpi á fyrri hluta níunda áratugarins, heimi sem er í senn framandi og kunnuglegur. Þetta er bók um þrá eftir hinu óljósa, leitina að sjálfum sér, draumkennd skip, og gamla loftbelgi sem líða um hugarheima ungmenna mjög ofarlega á slönguspilinu. Síðast en ekki síst er þetta ástarsaga sem gerist fjarri öllum kastljósum úti við ysta haf

    1983 er fjórða skáldsaga Eiríks Guðmundssonar. Sú síðasta, Sýrópsmáninn, var tilnefnd til menningarverðlauna DV.

    1.290 kr.
    Setja í körfu