• Grikkur

    Grikkur

    Myndlistamaður á áttræðisaldri deilir íbúð í fáeina sólarhringa með fjögurra ára dóttursyni sínum á meðan einkadóttir hans og tengdasonur fara í ráðstefnuferð. Hann er ekkill til margra ára og býr í Mílanó en dóttirin býr á æskuheimili hans í Napólí.

    Samspil hans við dóttursoninn, dótturina og tengdasoninn er fullt af grátbroslegum uppákomum. Fortíðardraugar fara á kreik og tilvistarkreppa aldraðs listamanns snýst upp í eins konar einvígi við dóttursoninn, sem reynist honum ofjarl á flestum sviðum og gerir honum óvæntan grikk.

    Domenico Starnone er einn fremsti skáldsagnahöfundur Ítala. Áður hefur komið út eftir hann á íslensku skáldsagan Bönd.

    990 kr.
    Setja í körfu