- -28%

Silfurgengið
Sirrýlei ætlar að halda gott 15 ára afmælispartí fyrir vini sína. Foreldrar hennar verða í útlöndum og planið er alveg skothelt. En smám saman flækjast málin, meira að segja amma hennar klikkar með því að gefa henni eldgamla nælu í staðinn fyrir flottu úlpuna sem hún óskaði sér.
Sirrýlei á erfitt með að halda kúlinu gagnvart vinum sínum þegar saga nælunnar og fyrri eigenda hennar, Silfurgengisins, nær tökum á henni. Bestu vinkonur hennar botna ekkert í henni og ekki batnar það þegar Sirrýlei velur nördalegasta áfangann í skólanum og lendir þar í hópi með stórundarlegum krökkum, meðal annars nýja stráknum með skrýtna nafnið og skyrhárið!
Silfurgengið er grípandi saga um vináttu og óvænt örlög. Brynhildur Þórarinsdóttir er margverðlaunaður höfundur barna- og unglingabóka og hlaut meðal annars Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir endursagnir sínar á Íslendingasögunum Njálu, Eglu og Laxdælu.6.390 kr.Original price was: 6.390 kr..4.590 kr.Current price is: 4.590 kr.. 
Dularfulla hjólahvarfið
3.190 kr.Enn er eitthvað dularfullt á seyði í hverfinu. Reiðhjól hverfa úr hjólaskýlinu við blokkina sem Katla, Hildur og Bensi búa í. Krakkarnir taka til sinna ráða og reyna að komast til botns í málinu.Rannsóknin tekur óvænta stefnu en skyldi þeim takast að leysa gátuna, aftur?
