• Ég vil ekki fara að hátta

    Ég vil ekki fara að hátta

    Lassi er fimm ára og vill aldrei fara að hátta. Þegar mamma hans segir honum að fara í rúmið vill hann frekar byggja úr kubbum, teikna eða hoppa ofan af eldhúsborði. Kvöld eitt heimsækir hann Lottu gömlu sem býr í íbúðinni fyrir ofan. Hún leyfir honum að prófa gleraugun sín – og það eru sko engin venjuleg gleraugu! Með þeim getur hann séð í gegnum holt og hæðir og fylgst með háttatíma dýranna.

    Þessi sígilda saga Astridar Lindgren, með myndum eftir Ilon Wikland, er nú loks fáanleg á ný. Vilborg Dagbjartsdóttir þýddi.
    5.190 kr.
    Setja í körfu
  • Lína fer í lautarferð

    Lína fer í lautarferð

    Það er indæll haustdagur. Tommi og Anna eru í leyfi frá skólanum og Línu finnst tilvalið að fara í lautarferð. Hún pakkar ýmsum kræsingum í nestiskörfu og svo halda þau af stað út í haga. Á vegi þeirra verða bæði sauðþrá kýr og nautheimskur tarfur – auk þess sem herra Níels hverfur sporlaust. En sem betur fer er Lína bæði sterk og ráðagóð og getur leyst hvers kyns vanda.

    Lína fer í lautarferð er sígild saga eftir Astrid Lindgren í nýjum búningi. Sigrún Árnadóttir þýddi.

    5.190 kr.
    Setja í körfu
  • Víst getur Lotta næstum allt
  • Víst kann Lotta að hjóla

    Víst kann Lotta að hjóla

    Lotta kann víst að hjóla – þegar enginn sér hana! Gallinn er bara að hún á ekkert hjól og mamma og pabbi halda að hún geti látið gamla þríhjólið duga í heilt ár í viðbót. Þá grípur Lotta til sinna ráða.

    Víst kann Lotta að hjóla eftir Astrid Lindgren er loks fáanleg að nýju. Ilon Wikland dregur upp litríkar og töfrandi myndir af hversdagslífinu í Skarkalagötu og sagan um hina uppátektarsömu Lottu gleður lesendur á öllum aldri.

    4.890 kr.
    Setja í körfu