• Jón Leifs: Líf í tónum

    Jón Leifs: Líf í tónum

    Tónskáldið Jón Leifs var einn merkasti og óvenjulegasti listamaður okkar á 20. öld. Í miðri heimsstyrjöldinni fyrri sigldi hann til Þýskalands, aðeins sautján ára gamall, staðráðinn í að leggja tónlistina fyrir sig þótt ekki hefði hann nema óljósan grun um hvað í því fælist. Hann kvæntist konu af gyðingaættum en bjó þó í Þýskalandi fram til ársins 1944, fluttist þá til Svíþjóðar þar sem ný ást og stór harmur biðu hans, og þaðan aftur heim til Íslands – í annars konar stríð og á vit enn nýrrar ástar.

    Saga hans er saga manns sem var of stór fyrir Ísland þess tíma – stórbrotinn metnaður hans og bjargföst trú á heilaga köllun í tónlistinni varð honum bæði gæfa og ógæfa. Jón var um margt langt á undan sinni samtíð, varð fyrstur Íslendinga til að stjórna fullskipaðri sinfóníuhljómsveit, hljóðritaði íslensk þjóðlög þegar þau voru einskis metin, stofnaði STEF og samdi tónlist sem mörgum þótti óþolandi hávaði en er nú talin með því merkasta sem gert hefur verið í íslenskri tónlist fyrr og síðar.

    Árni Heimir Ingólfsson skráir lífshlaup Jóns Leifs í þessari dramatísku ævisögu og hefur velt við hverjum steini í leit sinni að heimildum um líf hans. Bók hans er einstakur lykill að lífi þessa umdeilda listamanns. Fjölda áður óbirtra ljósmynda er að finna í bókinni.

    Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2009.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Syng, mín sál: 40 söngvar úr íslenskum handritum fyrri alda

    Syng, mín sál: 40 söngvar úr íslenskum handritum fyrri alda

    Ómissandi bók fyrir allt áhugafólk um íslenska tónlistarmenningu. Lögin sem hér eru loks gerð aðgengileg eru af marg­víslegum toga en eiga það sameiginlegt að hafa fyrir óralöngu lífgað upp á til­ veruna í hrjóstrugu landi á hjara veraldar.

    Íslensk handrit frá fyrri öldum hafa að geyma hundruð sönglaga en fæst þeirra hafa verið aðgengileg flytjendum og áhugafólki um tónlist. Nú hefur Árni Heimir Ingólfs­ son safnað saman 40 lögum úr þessum handritum. Þau eru af marg­víslegum toga en eiga það sameiginlegt að hafa fyrir óralöngu lífgað upp á til­ veruna í hrjóstrugu landi á hjara veraldar.

    Elstu lögin eru frá fimmtándu öld en þau yngstu frá þeirri átjándu og gefa þau góða mynd af tónlistarlífi á Íslandi í ríflega þrjár aldir. Í bókinni er einnig að finna greinargóðar skýringar á uppruna laganna og sögulegu samhengi þeirra.

    Árni Heimir Ingólfsson er mikilvirkur fræðimaður á sviði íslenskrar tónlistarsögu. Hann hefur í þrígang verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bækur sínar, nú síðast Tónar útlaganna.

    Syng, mín sál er ómissandi bók fyrir allt áhugafólk um íslenska tónlistarmenningu.

    6.890 kr.
    Setja í körfu