• söngur tímafuglsins og fleiri ljóð

    söngur tímafuglsins og fleiri ljóð

    Tíminn líður. Fólk lifir. Fólk deyr. Um flest er hægt að deila en ekki þetta. Í þessari marglaga bók fjallar skáldið um tímann og hverfulleika lífsins út frá ólíkum sjónarhornum. Hvað skiptir máli? Til hvers erum við hér? Sem manneskjur, sem skáld, sem lífverur sem ætíð greina til klukkunnar; söng tímafuglsins.

    4.190 kr.
    Setja í körfu
  • Grár köttur, vetrarkvöld

    Grár köttur, vetrarkvöld

    Hún strýkur leðrinu og áttar sig á því hvað það er orðið kalt. Hún verður að ræsa bílinn. Það er fyrsta skrefið.

    Hitað sæti gæti breytt öllu. Ef hún gerir það ekki kemst hún aldrei héðan. Og varla eru til verri örlög en að sitja að eilífu fastur á frosnu bílastæði úti á Seltjarnarnesi?

    Til hvers er lífið þegar kötturinn manns er týndur? Slík spurning gæti virst léttvæg, en þegar öllu er á botninn hvolft er þá eitthvað mikilvægara en að finna ylinn af öðru lífi?

    Að vita af einhverju sem undirstrikar eigin mannleika? Eitthvað sem jafnvel mætti kalla ást?

    Grár köttur, vetrarkvöld er loðin lýsing á þeirri upplifun að upplifa. Að þrá og þurfa og þjást og þakka fyrir að vera til. Allt eftir aðstæðum. Á meðan skuggarnir lengjast og rotturnar fara á stjá…

    6.490 kr.
    Setja í körfu
  • Oddur pennans er nál

    Oddur pennans er nál

    Hvað er ást? Hvað er merking? Hvað er tilgangur? Hver er ég og til hvers er eitthvað yfir höfuð? Engum þessara spurninga og allmörgum til verður ekki svarað í nýjustu bók Ægis Þórs.

    4.690 kr.
    Setja í körfu