Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2026 |
| Tungumál | |
| Form | Sveigjanleg kápa |
5.290 kr.
Ída er ekkert venjulegt barn. Hún hagar sér undarlega, talar tungum og á ósýnilegan vin, fuglinn Pótó. Brynja er sannfærð um að dóttir hennar sé andsetin og eftir því sem áhyggjur hennar aukast fara yfirnáttúrulegir atburðir að trufla veruleikaskynjun þeirra beggja. Meðan Hafliði vinnur að myndlistarsýningu með hópi flóttamanna leitar Brynja allra leiða til að fá skýringu á hegðun dóttur þeirra, og hvað það þýðir að vera foreldri.
Fuglamál er samtímasaga með hryllingsívafi um ást og aktívisma, listir og barneignir en fyrst og fremst allt hið óvænta og vandasama við móðurhlutverkið.
Marta María Jónsdóttir er myndlistarmaður og rithöfundur. Hún er með meistarapróf í ritlist frá Háskóla Íslands og í myndlist frá Goldsmiths, University of London. Marta hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið einkasýningu í Sverrissal í Hafnarborg. Fuglamál er hennar fyrsta skáldsaga.
Á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2026 |
| Tungumál | |
| Form | Sveigjanleg kápa |