Availability: Á lager

Vernon G. Little

Höfundur: DBC Pierre
SKU: SKLDVGL

1.290 kr.

Vernon G. Little er 15 ára drengur sem búsettur er í bandarískum smábæ og á allt annað en auðvelt með að fóta sig í tilverunni. Hann lumar líka á allskyns mismerkilegum leyndarmálum, eins og kemur á daginn þegar yfirvöld og fjölmiðlar fá áhuga á honum í framhaldi af blóðugum fjöldamorðum í skólanum hans. Fyrr en varir er Vernon flæktur í þéttan lygavef sem torvelt reynist að losna úr.

D.B.C Pierre hlaut, flestum að óvörum, Bookerverðlaunin fyrir þessa frumraun sína á sviði skáldskapar árið 2003. Síðan þá hefur bókin verið þýdd á fjölda tungumála og hvarvetna hlotið frábærar viðtökur. Hún er gegnsýrð af kolsvörtum húmor og nístandi kaldhæðni, en birtir jafnframt nýstárlega sýn á veruleika almennings á Vesturlöndum.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2004

Þýðandi

Tungumál

Form

Sveigjanleg kápa

Blaðsíður

329

Ástand

notuð