Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2026 |
| Tungumál | |
| Form | Sveigjanleg kápa |
6.890 kr.
UPPSELD/ENDURPRENTUN – Þú getur keypt bókina og sótt hana eða fengið senda um leið og önnur prentun kemur í hús.
„Tilhugsunin um að það verði ekkert bergmál. Að líf mitt verði eins og að klappa einu sinni saman lófum í hljóðeinangruðu herbergi.“
Varkár er persónulegt verk um þrána eftir því að eignast barn og um tilveruna sem bíður ekki eftir neinum.
Í stuttum, áhrifamiklum brotum fléttast saman minningar, hversdagsleg augnablik, ástin og missir í frásögn sem er í senn átakanleg og á köflum óþægilega fyndin, en sýnir okkur mennskuna sem birtist þegar lífið lætur ekki að stjórn.
Margrét Bjarnadóttir er fædd í Reykjavík árið 1981. Hún vinnur innan ólíkra forma og miðla, einkum á sviði dans, myndlistar og skrifa. Hún er menntuð sem danshöfundur frá ArtEZ listaháskólanum í Hollandi og hefur lokið meistaranámi í ritlist við Háskóla Íslands. Verk hennar hafa verið sýnd á hátíðum, söfnum og í leikhúsum víða um heim. Margrét hefur áður sent frá sér bækurnar Orðið á götunni og Líf mitt, til dæmis (dagbækurnar 1998–2002). Varkár er hennar fyrsta skáldverk.
Vara ekki til í augnablikinu. Í boði sem biðpöntun.
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2026 |
| Tungumál | |
| Form | Sveigjanleg kápa |