Availability: Á lager

Þar sem vegurinn endar

Höfundur: Hrafn Jökulsson
SKU: SKLD0THAR

1.290 kr.

„Ég hafði ekki verið lengi í Stóru-Ávík þegar Guðmundur bóndi segir mér að ganga á reka og athuga hvort norðanáttin hafi fært okkur nýjar gjafir frá Sovétríkjunum.“

Átta ára gamall fór Hrafn Jökulsson í sveit í Árneshreppi á Ströndum. Það er afskekktasta sveit á landinu – þar sem vegurinn endar.

Nokkrum áratugum síðar vitjar hann sveitarinnar að nýju. Í þessari fallegu bók stiklar Hrafn um sögu sveitarinnar frá örófi og fram á 21. öldina. Hann segir frá stórskornu fólki og sérkennilegu; frá niðursetningum, stórbændum og galdramönnum, frá fegurð lífsins og harðneskju lífsbaráttunnar.

En um leið er bókin einstæð saga Hrafns sjálfs. Á lifandi og fjörlegan hátt en um leið hrífandi og hjartnæman segir hann frá vegferð sinni um lífið og því fólki sem helst hefur haft áhrif á hann.

Þetta er í senn skemmtilegur óður til bernskunnar en um leið vegvísir um lífið sjálft.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2007

Útgáfa

1. útgáfa

Tungumál

Kápuhönnun

Form

Innbundin

Ástand

notuð