Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2026 |
| Tungumál | |
| Form | Sveigjanleg kápa |
6.990 kr.
Byggingin sjálf var óvenjuleg. Um var að ræða fyrrum heilsugæslustöð sem stóð við gatnamót í Saint-Gilles hverfinu í Brussel, mynduð úr tveimur samliggjandi húsum sem stóð til að breyta í íbúðaeiningar […] Uppsetning sýningarinnar tók hins vegar aðeins einn dag. Eins og venjulega var framkvæmdin einföld og unnin í þögn, án þess að aukatekið orð væri sagt, samkvæmt því óskráða verklagi sem við höfum margoft fylgt og felur í sér endurteknar og nánast ósjálfráðar hreyfingar sem við kunnum utanbókar og kenna má við innsæi. Í þessu tilviki voru staðsetningar þegar ákveðnar. Eftir að hafa dvalið fimmtán daga í byggingunni þar sem við höfðum hreiðrað um okkur í huganum í hverju skoti, má segja að teikningarnar, málverkin og ljósmyndirnar hafi nánast fundið sinn stað sjálfkrafa. Um leið og við skröpuðum hvern flöt, grannskoðuðum við hann og þá má segja að hann hafi kallað á tiltekið verk. Veggirnir tóku ákvörðun fyrir okkur, við þurftum einungis að leggja við hlustir.
Á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2026 |
| Tungumál | |
| Form | Sveigjanleg kápa |