Availability: Á lager

Skuggamyndir úr ferðalagi

SKU: SKLD0SKUG-K

990 kr.

Ljóðskáld leggur land undir fót, ferðinni er heitið á vettvang liðinna atburða, til móts við horfinn tíma og gengnar kynslóðir. Smámyndir úr veruleikanum og fortíðinni raðast saman í áhrifamikla ferðasögu í tíma og rúmi, ljóðræna minningabók og ættarsögu í brotum. Aôfengnir textar og ríkulegt úrval ljósmynda í frjóu samspili við lesmálið gera sitt til að víkka og dýpka frásögnina í þessu frumlega og fallega verki á mörkum margra forma. Lifandi skáldskapur sem einkennist af næmi fyrir því smáa og stóra í mannlegri tilveru.

„Tök hans á stuttum textum eru með eindæm- um. Hvort sem hann er angurvær, hæðinn eða sér skoplegu hliðarnar á hlutunum getur hann skrifað nokkrar línur uppfullar af meiri töfrum en margir skrifa í heilu og hálfu bækurnar.“
– Brynjólfur Þór Guðmundsson, DV

„Stórbrotið rútuferðlag með meistara smáprósans.“
– Mannamál, Stöð 2

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2009

Tungumál

Kápuhönnun

Form

Kilja

Ástand

notuð