Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2001 |
| Tungumál | |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |
1.290 kr.
Árið 1627 varð einhver hrikalegasti atburður Íslandssögunnar, Tyrkjaránið svokallaða, þegar ofbeldismenn frá annarri veröld hertóku um 400 Íslendinga og fluttu þá nauðuga suður um höf til þrældóms í Barbaríinu.
Ein í hópnum var Guðríður Símonardóttir, ung sjómannskona og móðir í Vestmannaeyjum. Steinunn Jóhannesdóttir fylgir Guðríði á hennar löngu reisu í þrælakistuna í Alsír, segir frá níu ára vist hennar þar og lýsir ferðinni norður á bóginn aftur uns hún eygir Ísland á ný með Hallgrími Péturssyni. Fjöldi annarra hernumdra Íslendinga fær einnig nafn og sögu í bókinni þar sem skyggnst er á bak við tjöldin í heimi araba og islams á 17. öld.
Að baki þessu viðamikla skáldverki liggur sex ára rannsóknarvinna og ferðalög á söguslóðir í Alsír og Marokkó, á Mallorca, í Frakklandi, Þýskalandi, Englandi, Hollandi og Danmörku. Þótt fátt sé vitað með vissu um ótrúlegt lífshlaup Guðríðar er æði margt að finna um aldarandann og lifnaðarhætti fólks á þessum tíma. Í þann sjóð sækir höfundur og skapar heilsteypta, ævintýralega og spennandi sögu af ánauð og frelsun sterkrar konu.
Á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2001 |
| Tungumál | |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |