Availability: Á lager

Öreindirnar

Höfundur: Michel Houellebecq
SKU: SKLD0ORE

1.290 kr.

Á síðari hluta tuttugustu aldar búa í Frakklandi tveir hálfbræður, Michel og Bruno. Þeir hafa alist upp hvor í sínu lagi hjá ættingjum og á stofnunum því foreldrarnir voru uppteknir við að breyta heiminum og boða frjálsar ástir. Michel er afburða erfðavísindamaður, en Bruno er menntaskólakennari sem lifir hamslausu og örvæntingarfullu kynlífi. Dag einn tekur Michel sér leyfi frá störfum til að hugsa. Það verður til þess að framþróun mannkyns tekur nýja og óvænta stefnu.

Öreindirnar er ein berorðasta og magnaðasta skáldsaga síðari ára. Hér er á nýjan hátt teflt saman sögu tuttugustu aldar, kynlífi, líkamsdýrkun, vísindahyggju og heimspeki uns eftir stendur einstök mynd af lokaskeiði vestrænnar menningar, eftirmáli við heiminn sem við byggjum. Fáar sögur hafa vakið jafn miklar deilur og umtal á seinni árum, jafnt í heimalandi höfundar, Frakklandi, sem öðrum Evrópulöndum. Hún sló í gegn í Frakklandi þegar hún kom út haustið 1998 og vermdi efstu sæti metsölulista mánuðum saman.

Michel Houellebecq (f. 1958) er landbúnaðarverkfræðingur að mennt en starfaði um árabil í tölvudeild franska landbúnaðarráðuneytisins og síðan hjá franska þinginu, en hann hefur alfarið helgað sig ritstörfum undanfarin ár. Hann hefur sent frá sér ljóðabækur, geisladiska með ljóðalestri, ritgerðasöfn og þrjár skáldsögur. Hann hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir þessa skáldsögu og hún hefur verið þýdd á hartnær þrjátíu tungumál.

Friðrik Rafnsson þýddi.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2000

Þýðandi

Tungumál

Kápuhönnun

Form

Innbundin

Ástand

notuð