Availability: Á lager

Óbærilegur léttleiki tilverunnar

Höfundur: Milan Kundera
SKU: SKLD0OBAE12-K

990 kr.

Dag einn stendur þjónustustúlkan Teresa í dyragættinni hjá Tómasi lækni í Prag og er komin til að vera. Kvennagullið tekur sveitastúlkunni opnum örmum en framhaldið er ekki á þeirra valdi. Þau eru leiksoppar sögunnar rétt eins og heimalandið, Tékkóslóvakía, sem á örlög sín undir grannanum stóra í austri.

Ást, kynlíf, stjórnmál, heimspeki, dauði – allt fléttast snilldarlega saman í grátbroslegri og margslunginni sögu þar sem frelsið sem býr í draumum verður fólki kærkomið athvarf í óbærilegum ólgusjó tilverunnar.

Óbærilegur léttleiki tilverunnar er sú bóka Milan Kundera sem víðast hefur farið. Sagan kom fyrst út 1984 og í íslenskri þýðingu tveimur árum síðar. Æ síðan hefur Kundera átt stóran og tryggan lesendahóp hér á landi.

Friðrik Rafnsson þýddi og í bókarlok er birt viðtal hans við Kundera.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2012

Þýðandi

Titill á frummáli

Nesnesitelná Lehkost Bytí

Form

Kilja

Blaðsíður

360

Þér gæti einnig líkað við…