Availability: Á lager

Nornin í eldhúsinu

SKU: FORNORELD

6.390 kr.

Einn niðdimman desembermorgun, þegar Pétur er nýbúinn að sannfæra pabba um að hann geti labbað sjálfur í skólann, birtast tvær glitrandi glyrnur í myrkrinu. Þessar glyrnur verða upphafið að skrítnum og skemmtilegum aðventuævintýrum þeirra Péturs og vinkonu hans Stefaníu, risahundsins Lubba og dálítið geðstirðrar nornar sem býr í furðulegasta kofa sem hugsast getur.

Nornin í eldhúsinu vann samkeppni Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar um jóladagatal ársins 2020 en hún kemur hér út með glænýjum myndum. Þar með fást allar fjórar sögurnar um fjörkálfana Pétur og Stefaníu, ein fyrir hverja árstíð. Sögurnar hafa sópað til sín viðurkenningum, þar á meðal tilnefningu til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Þær eru ætlaðar 6 til 10 ára lesendum.

Letur bókarinnar er lesvænt og sagan því upplögð fyrir heimalesturinn.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

,

Myndhöfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2026

Tungumál

Form

Innbundin