Availability: Uppselt

Mitt nafn er Rauður

Höfundur: Orhan Pamuk
SKU: SKLD0MITNAF

1.290 kr.

Seint á sextándu öld felur soldáninn í Istanbúl fremstu skrifurum og myndlistarmönnum í ríki sínu að setja saman viðhafnarrit að evrópskum sið. Verkið skal unnið á laun og er mikið hættuspil þar sem öll hlutbundin myndlist stangast á við ríkjandi trúarhugmyndir í landinu. Listamennirnir þurfa að fara huldu höfði en þegar einn þeirra hverfur sporlaust grípur um sig ótti. Hann kann að hafa orðið fórnarlamb trúarofstækis – eða afbrýðisemi. Soldáninn krefst skjótra svara og hugsanlega leynist vísbending um afdrif mannsins í hálfköruðum myndverkum hans.

Nafn mitt er Rauður er margslungin skáldsaga; ekki aðeins óvenjuleg morðgáta og hjartnæm ástarsaga af framandi slóðum, heldur einnig áleitin krufning á eðli listrænnar sköpunar. Hér kallast margar raddir á – framliðinn maður, morðingi, elskendur, hundur og tré eru meðal þeirra sem fá málið í þessari þéttofnu og litríku verðlaunasögu frá Tyrklandi.

Orhan Pamuk hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2006. Hann hefur hlotið fjölda annarra viðurkenninga fyrir skáldsögur sínar víða um lönd en þær hafa verið þýddar á yfir tuttugu tungumál. Nafn mitt er Rauður er fyrsta bók hans sem kemur út á íslensku.

Árni Óskarsson þýddi.

Ekki til á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2008

Þýðandi

Tungumál

Form

Innbundin

Ástand

notuð