Availability: Á lager

Marginalía

4.390 kr.

Mörgum árum eftir að leiðir þeirra skildu hittast íslenskufræðingurinn Styrkár og blaðakonan Garún í Eddu, nýju heimili handritanna og húsi íslenskunnar.

Ljós flökta, hurðir opnast og lokast án sýnilegrar ástæðu og ógnandi nærvera gerir vart við sig. Skyndilega eru Styrkár og Garún læst inni og verða að vinna saman til að komast aftur út. Áður en hryllingurinn nær yfirhöndinni þurfa þau að horfast í augu við fortíðardraug sem þau töldu sig hafa kveðið niður fyrir fullt og allt.

Höfundar: Áslaug Ýr Hjartardóttir, Unnar Ingi Sæmundsson, Katrín Mixa og Vala Hauksdóttir.

Ritstjórar: Anna Margrét Bragadóttir, Elías Rúni Þorsteins og Fjóla K. Guðmundsdóttir

Bókin er samstarfsverkefni nemenda í ritlist Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

, , ,

Útgefandi

Útgáfuár

2025

Tungumál

Form

Kilja