Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2016 |
| Kápuhönnun | |
| Blaðsíður | 416 |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |
1.290 kr.
Einn leyndardómur íslenskra fornsagna eru örstutt brot um „svartleitan“ mann sem þar bregður fyrir – Geirmund heljarskinn.
Hann er sagður dökkur og ljótur, með mongólska andlitsdrætti af konunglegum uppruna, sagður „göfgastur landnámsmanna“ og ríður um sveitir Íslands með áttatíu vígamenn, og á mörg stórbú þar sem hann heldur mörg hundruð þræla. En hver var Geirmundur heljarskinn? Af hverju er engin saga varðveitt af honum og af hverju hefur hann nánast fallið í gleymsku?
Hér tekur Bergsveinn Birgisson lesandann með sér í heillandi ferðalag um forna tíma og fjarlæg lönd – en einnig á slóðir Geirmundar við Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Með því að rýna ískjöl, fornleifar og nýta nýjustu tækni kviknar fortíðin til lífs og púslin raðast saman í spennandi frásögn, sem er skrifuð af þekkingu, skáldlegum innblæstri og stílgáfu.
Fyrsta útgáfa af Leitinni að svarta víkingnum kom út á norsku og hlaut frábærar viðtökur. Bergsveinn er doktor í norrænum fræðum og var tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Svar við bréfi Helgu.
Ekki til á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2016 |
| Kápuhönnun | |
| Blaðsíður | 416 |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |