Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 1992 |
| Tungumál | |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |
1.290 kr.
Þessi nýja útgáfa Kvæðakvers hefur að geyma kvæði Halldórs Laxness frá löngum ferli. Hér er að finna mörg ástsælustu ljóð þjóðarinnar, skáldskap sem nánast hefur ort sig inn í þjóðarvitundina, oft fyrir tilstilli fremstu tónskálda okkar.
Þegar Kvæðakver kom fyrst út, árið 1930, þótti það allnýstárlegt. Þar komu fram djarfar tilraunir til að leysa íslenskt ljóðmál úr viðjum hins hefðbundna forms og tónninn var ögrandi. Í ljóðunum mátti finna háðska ádeilu, stælingar og gamanmál, uppreisn gegn fáfengilegu orðaprjáli og uppblásnum hátíðleik.
Í annarri útgáfu Kvæðakvers 1949 var fjölda ljóða aukið við og nú hefur enn verið bætt í safnið kvæðum úr skáldsögum og leikritum höfundar sem ekki hafa fyrr ratað í kverið.
Í pistli í bókarlok greinir Halldór Laxness frá hvar og hvenær einstök kvæði eru ort og varpar ljósi á baksvið þeirra.
Á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 1992 |
| Tungumál | |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |