Availability: Uppselt

Í sama strauminn: Stríð Pútíns gegn konum (notuð)

Höfundur: Sofi Oksanen
SKU: SKLD0ISAMA

1.990 kr.

Hér fjallar eistnesk-finnski rithöfundurinn Sofi Oksanen um kynferðisofbeldi sem helsta vopn rússneskrar heimsvaldastefnu undir stjórn Pútíns. Hún vísar í sína eigin fjölskyldusögu þegar hún greinir frá og fordæmir það kerfisbundna ofbeldi sem rússneski herinn hefur áratugum saman beitt andstæðinga sína og nágrannaþjóðir. Ýmsar ógnir steðja að lýðræðinu víðs vegar um heiminn og þessi vægðarlausa bók er brýn og fræðandi áminning, skrifuð af miklu hugrekki.

Sofi Oksanen er ein mikilvægasta röddin í bókmenntaheiminum í dag. Hún hefur hlotið alþjóðleg verðlaun fyrir verk sín og bækur hennar hafa verið þýddar á yfir fimmtíu tungumál.

Erla Elíasdóttir Völudóttir þýddi úr finnsku.

Ekki til á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2025

Þýðandi

Tungumál

Form

Sveigjanleg kápa

Ástand

notuð