Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2006 |
| Tungumál | |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |
1.290 kr.
Í húsi Júlíu (2006) segir frá tveimur systrum og stormasömum samskiptum þeirra. Þegar Lena kemur heim öllum að óvörum eftir áratuga langa dvöl í útlöndum og sest að í húsi Júlíu fara þau hjól að snúast sem bjóða hættunni heim.
Viðfangsefnin í þessari skáldsögu Fríðu Á. Sigurðardóttur eru mörg og áleitin og á sinn einstaka hátt vefur Fríða saman alla þræði svo að úr verður áhrifamikil og mögnuð samtímasaga. Í húsi Júlíu er einstaklega vel skrifuð, fyndin og fáguð og í henni kveður við nýjan tón í íslenskri bókmenntaflóru. En umfram allt er hér tekið á málum sem brenna á nútímakonunni: Hvers vegna fórna konur sér iðulega fyrir aðra?
Fríða Á. Sigurðardóttir er einn virtasti rithöfundur þjóðarinnar. Hún hefur sent frá sér smásögur, skáldsögur og þýðingar. Skáldsaga hennar Meðan nóttin líður (1990) hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin, Menningarverðlaun DV í bókmenntum og Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1992 og hefur verið þýdd og gefin út víða erlendis.
Á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2006 |
| Tungumál | |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |