Availability: Á lager

Guðsgjafaþula

SKU: SKLD0GUDS72-RK

2.990 kr.

Guðsgjafaþula er rituð í endurminningastíl með tilstyrk „sögumanns“, greinargerð um liðið tímabil. Þessi sögumaður er rithöfundur, en verzlar líka með fugla. Hann kemur fyrst við í frásögn sinni árið 1920 í Kaupmannahöfn, þarnæst 1938 í norðlenzk-vestfirzku síldarplássi, Djúpvík. Og loks í London eftir síðara stríð. Þetta er hið mikla „tímabil norðurlandssíldarinnar“. Aðalsöguhetjan, Bersi Hjálmarsson, Íslandsbersi öðru nafni, er síldarspekúlant af þeirri tegund, sem uppi var í þann tíð. Reyndar er þessi síldarkaupmaður varla neinnar tegundar, hann er náttúrufyrirbæri og sögulegt undur. Hann er sömuleiðis einhver skemmtilegasta persóna, sem komið hefur fyrir í sögum Halldórs Laxness.

Síldin er alls staðar í baksýn, dularfull, óútreiknanleg, einnig þegar hún er komin á land. Henni fylgir rökleysi í lífi manna og athöfnum. Guðsgjafaþula er mikill aldarspegill. Siöalögmál, trú, pólitík, einkum verklýöspólitík þessa tíma, hættir manna, hugmyndir og búnaður, allt birtist í óvæntu og stundum miskunnarlausu ljósi. Samt er frásögn sögumanns blandin mikilli mildi. Hann er gestur í heimi athafnanna. Og það er Bersi Hjálmarsson reyndar líka. Hann er a.m.k. af tveimur heimum. En um það fjallar sagan.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

1972

Útgáfa

1. útgáfa

Tungumál

Form

Innbundin

Ástand

með rykkápu, notuð