Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2003 |
| Þýðandi | |
| Titill á frummáli | The Bell Jar |
| Ástand | notuð |
990 kr.
Esther er skarpgreind og glæsileg, eins og klippt út úr kvennablaðinu sem hún vinnur hjá, en sjálfstraustið er í molum. Hún þráir að verða rithöfundur en finnur ekki fótfestu í samfélagi þar sem gildi karla eru ráðandi, Bilið milli sjálfsmyndar hennar og þess sem ætlast er til af henni breikkar stöðugt þar til hún missir loks tengsl við veruleikann.
Lýsinguna á þrúgandi andrúmslofti geðsjúkdómsins undir glerhjálminum byggir Sylvia Plath, á eigin reynslu. En galdur sögunnar liggur í hinum listræna búningi sem hún færir hana í, látlausum stílnum og afhjúpandi fáránleika. Vitundarkreppa Estherar er samofin siðferðiskreppu bandarísks þjóðfélags og ekki síst þeim blekkingarleik sem konur eru ofurseldar.
Sylvia Plath var eitt virtasta skáld seinni hluta 20. aldar i Bandaríkjunum. Saga hennar, Glerhjálmurinn, er áhrifamikil lýsing á reynslu einstaklings sem ratar eftir miklar hremmingar út úr myrkviðum dýpstu sálarangistar- og endurfæðist í andlegum skilningi. Þessi margslungna saga er talin ein merkasta perla heimsbókmenntanna.
Fríða Björk Ingvarsdóttir íslenskaði og ritaði eftirmála. Bókin er gefin út með styrk frá Þýðingarsjóði.
Ekki til á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2003 |
| Þýðandi | |
| Titill á frummáli | The Bell Jar |
| Ástand | notuð |