Availability: Á lager

Fullkomnun

Höfundur: Vincenzo Latronico
SKU: BENFUL

4.690 kr.

Anna og Tom hafa byggt líf sitt í Berlín upp af kostgæfni. Hver planta, hver uppskrift að hægelduðum réttum, hvert húsgagn og hver færsla á samfélagsmiðlum er úthugsuð.

Þau eru að nálgast fertugt, vinir þeirra eru að flytja í eigið húsnæði, gifta sig og eignast börn, en parið er í sjálfskipaðri útlegð langt frá heimahögum. Að fullkomna lífið er markmið heillar kynslóðar: hunangsgult parket, rifblöðkur, sjálfur í framandi löndum, lárperusneiðar á ristuðu súrdeigsbrauði. Anna og Tom vilja ekki staðna í leitinni að fegurðinni, sem ef til vill er ekki eins óaðfinnanleg og myndirnar á netinu gefa til kynna.

Fullkomnun hefur slegið rækilega í gegn víða um heim fyrir áleitna og kaldhæðna sýn á þúsaldarkynslóðina, sem hrærist í nýjum stafrænum veruleika og dreymir um að feta ótroðnar slóðir.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2026

Þýðandi

Titill á frummáli

Le Perfezioni

Kápuhönnun

Tungumál

Blaðsíður

113

Form

Kilja