Availability: Á lager

Fávitinn (seinna bindi)

SKU: SKLD0FAV2-K

1.290 kr.

Maðurinn í hettusláinu var ungur, tuttugu og sex eða tuttugu og sjö ára, rúmlega meðalmaður á hæð, með afar ljóst og mikið hár, kinnfiskasoginn með þunnt, niðurmjótt og hérumbil hvítt skegg. Augu hans voru stór, blá og íhugul, í augnaráði hans var eitthvað blíðlegt en um leið þungt, eitthvað af þeim einkennilega svip sem nægir til að giska á strax við fyrstu sýn að viðkomandi sé haldinn niðurfallssýki…

Á hlákublautum morgni í nóvember kemur Myshkin fursti til Pétursborgar, inn í iðandi atburðarás ásta, svika, undirferla og glæpa. Hann er einlægur og flekklaus maður, og Dostojevskí sýnir hér hvað gerist þegar slík persóna kemur inn í samfélag breyskra manna.

Fávitinn sem kom út í Rússlandi árið 1868 er með frægustu skáldsögum heimsbókmenntanna, ástríðufull og spennandi. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi bókina úr rússnesku og hlaut fyrir þá þýðingu Menningarverðlaun DV fyrir árið 1986.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

,

Útgáfuár

1990

Útgáfa

2. útgáfa

Tungumál

Þýðandi

Kápuhönnun

Form

Kilja

Ástand

notuð