Availability: Á lager

Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein?

SKU: SKLD0EIN

1.290 kr.

Í tilefni sýningarinnar Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? hafa verið teknir saman fjölbreyttir textar eftir myndlistarmenn, skáld, hugsuði, fjallagarpa og fræðimenn frá upphafi 20. aldar til samtímans. Textarnir fjalla allir um víðerni Íslands og spretta úr frjóum jarðvegi þar sem afstaða höfunda endurspeglar tíðaranda en einnig tilfinningu þeirra fyrir ósnortinni náttúru landsins. Innblásnir og áhrifamiklir textar úr ýmsum áttum, ljóð, dagbókarfærslur og fræðigreinar – en einnig hversdagslegar hugleiðingar um hálendið.

Komdu í ferðalag með höfundunum um víðerni landsins!

Á lager

Upplýsingar

Útgefandi

Útgáfuár

2018

Tungumál

Form

Kilja

Ástand

notuð