Availability: Á lager

Dýralíf

SKU: SKLD0DYRALI

1.290 kr.

Konu með mína starfsreynslu kemur fátt á óvart undir sólinni. Það er þá kannski helst maðurinn.

Í vetrarmyrkri, rétt fyrir jól, er áður óþekkt lægð í aðsigi. Á þriðju hæð við Ljósvallagötu býr ljósmóðir í íbúð sem hún erfði eftir einhleypa og barnlausa ömmusystur. Upp úr kassa undan Chiquita-banönum koma þrjú óútgefin handrit: Dýralíf, rannsókn á því sem mannskepnan er fær um, Sannleikurinn um ljósið og Tilviljunin.

Dýralíf fjallar um brothættasta og grimmasta dýrið: manninn. Og leitina að mennskunni.

Þetta er sjöunda skáldsaga Auðar Övu sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin og bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Ör og hin virtu Médicis-verðlaun í Frakklandi fyrir Ungfrú Ísland. Skáldsögur Auðar Övu hafa verið þýddar á 33 tungumál.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2020

Form

Innbundin

Blaðsíður

205

Ástand

notuð