Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2010 |
| Tungumál | |
| Kápuhönnun | |
| Blaðsíður | 267 |
| Form | Kilja |
| Ástand | notuð |
990 kr.
Auður Ketilsdóttir flatnefs vex upp á Suðureyjum, ættstór og skapheit. Allt hennar fólk er heiðið en þegar hún kynnist Gilla munki laðast hún að boðskap hans um Hvítakrist. Hún er gefin Ólafi hvíta konungi í Dyflinni og fer til Írlands með honum. En þangað á hún líka annað erindi og leynilegt…
Vilborg Davíðsdóttir hefur gert líf á norðurslóðum á fyrri öldum að sérsviði sínu. Saga hennar um æskuár landnámskonunnar Auðar djúpúðgu var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og vakti mikla ánægju lesenda og gagnrýnenda.
„Vilborg bregður upp skýrri og grípandi mynd af persónum sínum og því lífi sem þær lifðu: Lesandinn finnur lyktina af þeim, heyrir raddir þeirra, sér þær ljóslifandi … Skemmtileg og innihaldsrík saga …“
– Hrafn Jökulsson / Viðskiptablaðið
„… yndisleg bók … þroskasaga Auðar djúpúðgu verður í meðförum Vilborgar bæði sterk og heillandi.“
Jenný Anna Baldursdóttir, bókabloggari
„Þetta er saga sem kveikir áhuga á landnámskonunni Auði… skemmtileg og spennandi…“
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir / bokmenntir.is
Á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2010 |
| Tungumál | |
| Kápuhönnun | |
| Blaðsíður | 267 |
| Form | Kilja |
| Ástand | notuð |