Availability: Á lager

1983

SKU: SKLD01983

1.290 kr.

Á hjara veraldar er tólf ára gamall drengur á hraðri ferð inn í heim hinna fullorðnu. Á einu ári uppgötvar hann ekki aðeins ástina heldur einnig hverfulleikann, um leið og hann vígist inn í heim orðanna.

Hér er sögð nýstárleg saga úr íslensku þorpi á fyrri hluta níunda áratugarins, heimi sem er í senn framandi og kunnuglegur. Þetta er bók um þrá eftir hinu óljósa, leitina að sjálfum sér, draumkennd skip, og gamla loftbelgi sem líða um hugarheima ungmenna mjög ofarlega á slönguspilinu. Síðast en ekki síst er þetta ástarsaga sem gerist fjarri öllum kastljósum úti við ysta haf

1983 er fjórða skáldsaga Eiríks Guðmundssonar. Sú síðasta, Sýrópsmáninn, var tilnefnd til menningarverðlauna DV.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2013

Form

Innbundin

Blaðsíður

302

Ástand

notuð