-
Stjörnurnar yfir Eyjafirði
4.690 kr.Stjörnurnar yfir Eyjafirði er sjálfstætt framhald jólasögunnar Hittu mig í Hellisgerði sem sló í gegn á aðventunni 2024; notaleg, fyndin og rómantísk saga sem vermir hjartaræturnar.
Valería er búin að fá nóg af bæði brauðtertum og hinni velmeinandi móður sinni. Enda sannarlega kominn tími til að 27 ára gömul kona flytji úr foreldrahúsum. Tækifærið birtist óvænt í auglýsingu í Bændablaðinu: Jólagarðinn í Eyjafirði vantar samfélagsmiðlastjóra og starfinu fylgir íbúð! Valería leggur majónesið á hilluna og svífur vösk norður á vit ævintýranna.
En þótt það sé gaman í nýju vinnunni og fólkið sé indælt og gott, er ekki laust við að hún sakni vinkvenna sinna og sé auk þess orðin leið á að vera einhleyp. Þannig að Valería drífur í að stofna stefnumótaþjónustu og þá fara ástarhjólin sannarlega að snúast hjá ýmsum í Eyjafjarðarsveit.
-
Tál
8.690 kr.Tál er hröð og viðburðarík borgarsaga um lygar og spillingu, undirferli og svik, en ekki síst um nöturlega glæpi og skeytingarleysi gagnvart þeim sem minna mega sín. – Sjöunda sagan þar sem Konráð, fyrrverandi lögreglumaður, er í aðalhlutverki.
Héraðsdómari í Reykjavík er handtekinn fyrir morð á konu sem starfar við fylgdarþjónustu. Eiginkona hans er vitni í málinu og leitar ráða hjá Konráði sem þekkir vel til hjá rannsóknarlögreglunni. Fyrr en varir heldur hann inn í langa nótt að leita svara meðal morðingja, vændiskvenna, útigangsfólks og gamalla útrásarvíkinga sem öll hafa eitthvað að fela.
Arnaldur Indriðason hefur lengi verið vinsælastur íslenskra höfunda, bæði heima og heiman. Tál er 29. skáldsaga hans á jafn mörgum árum. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir bækur sínar sem hafa verið þýddar á yfir fjörutíu tungumál og selst í yfir tuttugu milljónum eintaka um víða veröld.
-
Flóra
5.990 kr.Flóra geymir myndir af flestöllum tegundum íslenskra blómplantna og byrkninga, alls um 460. Hér er megináherslan á að sýna plönturnar sjálfar, fegurð þeirra og sérkenni, fremur en vistfræði, útbreiðslu og flokkunarfræði – því hlutverki gegna fjölmörg önnur verk. Langflestar myndanna eru gerðar eftir lifandi eintökum en annars byggt á bestu heimildum sem völ er á til að gefa sem sannferðugasta mynd af hverri tegund auk þess sem ýmis einkenni eru dregin fram.
Myndir listamannsins Jóns Baldurs Hlíðberg af íslenskri náttúru, dýrum og foldarskarti, eru löngu kunnar hér á landi auk þess að hafa birst víða erlendis og hlotið þar margháttaða viðurkenningu.
Fátt jafnast á við að njóta skrúðs og fjölbreytileika blómanna í náttúrunni sjálfri en þegar því verður ekki við komið er gott að geta notið þeirra í myndasafni eins og því sem hér birtist.
-
Rósa og Björk
4.690 kr.Hvað varð um Rósu og Björk, yngri systur lögreglukonunnar Hildar, sem hurfu fyrir vestan árið 1994? Í öll þau ár sem liðin eru hefur ekkert til þeirra spurst en nú er Hildur loks komin á spor sem gæti leitt hana áleiðis að lausn gátunnar. Það þarf samt kjark til að horfast í augu við fortíðina …
Lögreglulífið á Ísafirði er líka allt annað en rólegt og lítill tími til að sinna öðru. Einn af máttarstólpum bæjarins, athafnamaður sem situr í sveitarstjórn, er skotinn til bana uppi í fjalli og Hildur og félagar eru ráðþrota. Hinn myrti var umdeildur, tókst á við pólitíska andstæðinga og einkalífið var skrautlegt svo að ýmsir gætu hafa viljað hann feigan. Og um götur Reykjavíkur reikar manneskja sem á harma að hefna.
Satu Rämö hefur slegið í gegn með bókunum um hina vestfirsku Hildi. Satu er finnsk en hefur búið lengi á Íslandi. Glæpasögur hennar hafa selst í bílförmum í Finnlandi, Þýskalandi og víðar. Sú fyrsta, Hildur, varð metsölubók hér heima – Rósa og Björk er æsispennandi framhald.
Erla Elíasdóttir Völudóttir þýddi.
-
Diplómati deyr
4.690 kr.Hópur kanadískra diplómata verður veðurtepptur í opinberri heimsókn í Vestmannaeyjum, þar á meðal sendiherra Kanada á Íslandi og eiginkona hans. Á meðan óveðrið geisar úti fyrir snæða gestirnir saman hátíðarkvöldverð – en svo hnígur aðstoðarsendiherrann niður fyrir framan viðstadda. Fljótlega kemur í ljós að um morð er að ræða og ýmsir liggja undir grun: athafnamaðurinn sem svífst einskis í samningum, meistarakokkurinn sem reiðir fram dýrindis máltíðir úr nærumhverfinu og dularfulla myndlistarkonan sem er að opna sýningu á byggðasafni bæjarins … svo nokkrir séu nefndir. En sendiherrafrúin er hvergi bangin og ákveður að komast til botns í málinu upp á eigin spýtur.
Diplómati deyr er fyrsta skáldsaga Elizu Reid, spennandi og listilega fléttuð glæpasaga þar sem leyndarmálin eru afhjúpuð hvert af öðru.
Magnea J. Matthíasdóttir þýddi.
-
Ótrúlega skynugar skepnur
4.690 kr.Tova Sullivan er nýorðin ekkja og farin að vinna við ræstingar í Sædýrasafni Sowell Bay. Það hefur alltaf átt vel við hana að hafa nóg fyrir stafni, ekki síst þegar erfiðleikar steðja að. Eins og þegar Eric, átján ára gamall sonur hennar, hvarf á dularfullan hátt þrjátíu árum fyrr.
Sædýrasafnið er fullt af furðuskepnum en sú sem vekur mesta athygli Tovu er geðstirður kyrrahafskolkrabbi að nafni Marcellus. Smám saman myndast sérstæð vinátta með ræstingakonunni og kolkrabbanum, sem reynist luma á dýrmætum upplýsingum um hvarf Erics. En tíminn til að miðla þeim er að renna út.
Ótrúlega skynugar skepnur er hnyttin og heillandi saga um uppgjör við fortíðina sem farið hefur sigurför um heiminn; hún hefur verið þýdd á yfir þrjátíu tungumál og selst í meira en tveimur milljónum eintaka.
Nanna Brynhildur Þórsdóttir þýddi.