
Dagbók Hélène Berr
1.290 kr.Hélène Berr var ung stúlka af gyðingaættum sem bjó við gott atlæti hjá velstæðum foreldrum sínum í París og stundaði nám við Sorbonne-háskóla þegar síðari heimsstyrjöldin skall á. Það þrengdi sífellt meira að fjölskyldunni eins og öðrum gyðingum sem var smám saman útskúfað úr samfélaginu.
Hélène byrjaði að skrifa dagbók árið 1942 en síðasta færslan er 15. febrúar 1944, daginn sem hún er tekin höndum, og endar á tilvitnun í Macbeth: „Ó skelfing! skelfing! skelfing!“Þessari einstöku dagbók hefur verið líkt við „Dagbók Önnu Frank“, báðar stúlkurnar létu lífið skömmu áður en stríðinu lauk en höfðu lengi þraukað og barist við að gera það besta úr hörmulegum aðstæðum. Sögur þeirra eru þó gjörólíkar. Hélène Berr, hin 22ja ára listhneigða Parísarstúlka, hefur nýlega eignast kærasta. Ekki síst hans vegna skrásetur hún hugleiðingar sínar, þrár og væntingar og atburðina sem lýsa jöfnum höndum þjóðfélagsástandinu og sálarástandi hinnar ástföngnu og hæfileikaríku stúlku.
Minningarnar eru einstaklega vel skrifaðar, hjartnæmar og hrífandi enda hlaut bókin gríðarlega athygli þegar hún kom út í Frakklandi í janúar 2008 og þaut beint á metsölulista.
„Við upphaf þessarar bókar er við hæfi að þegja, hlýða á raust Hélène og ganga henni við hlið. Rödd og nærvera sem fylgir okkur ævilangt.“ – Patrick Modiano (úr formála)



Ólyfjan
990 kr.Lífið er bara eitt stórt djók. Nei, svona í alvöru, sagði hann og yggldi sig framan í hana eins og til að segja að þar væri hún ekki undanskilin. Um leið og hann sleppti orðinu hugsaði hann með sér að hann hlyti að vera hálfgerður snillingur fyrir að hafa fundið upp á þvílíkri lífsspeki. Eða átti þetta kannski einungis við hans líf? Að hann væri djókið? Brandari bæjarins.
Ólyfjan er fyrsta skáldsaga Díönu Sjafnar Jóhannsdóttur. Eitruð karlmennska og skáldsagnaformið allt er undir í þessari frumraun höfundar.
