
Júlíana Jónsdóttir – Ljóðmæli: Stúlka & Hagalagðar
7.990 kr.Júlíana Jónsdóttir í Akureyjum var fyrst íslenskra kvenna til þess að fá gefna út bók eftir sig. Það var ljóðabók sem nefndist Stúlka og kom út árið 1876. Löngu síðar kom út önnur ljóðabók eftir Júlíönu, sem þá var orðin roskin og flutt til Vesturheims; sú nefndist Hagalagðar.
Á afmælisári beggja bókanna koma þær nú út saman í einu bindi, önnur 150 ára gömul og hin 110 ára. Ljóðin bera aldurinn vel og vitna um leiftrandi gáfur, seiglu og skopskyn Júlíönu sem var vinnukona frá ungaaldri og hlaut enga formlega skólagöngu.
Silja Aðalsteinsdóttir og Sólveig Ásta Sigurðardóttir rita for- og eftirmála.

Mið-Austurlönd – fortíð, nútíð og framtíð
6.990 kr.Mið-Austurlönd – sem afmarkast af Egyptalandi í vestri, Íran í austri, Tyrklandi í norðri og Jemen í suðri – eru einhver mesti suðupottur okkar tíma og hafa raunar verið um áratugaskeið. Nær daglega flytja fjölmiðlar þaðan fréttir af stríðshörmungum, kvennakúgun, misskiptingu og neyð. Um leið hafa víglínurnar færst óþægilega nærri Vesturlöndum – hryðjuverk í nágrannalöndum okkar og straumur flóttafólks meinar okkur að loka augunum fyrir ástandinu.Ýmis vandamál Mið-Austurlanda eiga rætur í tíðum og víðtækum afskiptum Vesturlanda af þessum heimshluta í fortíð og nútíð. Fleira kemur þó til því íbúar svæðisins hafa á síðastliðnum hundrað árum beitt ýmsum aðferðum til að finna hinn gullna meðalveg hefðar og nútíma, sjálfstæðis og jafnréttis, ofbeldis og framfara, trúfrelsis og einstaklingsfrelsis.Þessi þýðingarmikla bók kom fyrst út árið 2018, hlaut þá einstakar viðtökur og hefur ítrekað verið endurprentuð. Hér er um nýja útgáfu að ræða þar sem síðustu vendingum sögunnar eru gerð skil, meðal annars atburðum á Gaza, þróun mála í Sýrlandi og borgarastríði í Jemen.Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í nútímasögu Mið-Austurlanda við Williams College í Massachusetts og gistikennari við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands, er helsti sérfræðingur okkar í sögu þessa svæðis. Hér fjallar hann um öll meginstefin í sögu Mið-Austurlanda á yfirvegaðan og aðgengilegan hátt.
Irpa
4.990 kr.Eftir ítrekuð fósturlát þráir Edda tilbreytingu. Hún er orðin þreytt á vinnunni, íbúðinni, matarboðunum með vinkonunum og eilífum óléttutilkynningum þeirra … öllu. Þegar hún sér litla eyju á Austfjörðum auglýsta til sölu sannfærir hún Atla um að þar geti þau byrjað nýtt líf.
Á Varpey vex allt og dafnar, björgin eru full af fugli, brekkurnar þaktar berjalyngi og hafið í kring krökkt af fiski. Edda og Atli koma sér fyrir í litla íbúðarhúsinu og hefjast handa við að breyta hlöðunni í gistiheimili. Þegar Edda tekur að sjá hvítklæddri konu bregða fyrir telur hún fyrst að sér hljóti að hafa missýnst. Smám saman verður hún þó sannfærð um að þau séu ekki ein á eyjunni heldur deili henni með einhverjum sem vilji þeim illt, einhverjum sem hefur bæði líf og dauða í hendi sér.
Hildur Knútsdóttir er einn virtasti ungmennabókahöfundur landsins en hún hefur einnig slegið í gegn með nóvellum sínum fyrir fullorðna, ekki síst í hinum enskumælandi heimi. The New York Times útnefndi Myrkrið milli stjarnanna eina af tíu bestu hrollvekjum ársins 2024 og bókin hefur jafnframt verið tilnefnd til bæði Dublin-bókmenntaverðlaunanna og World Fantasy-verðlaunanna. Kvikmyndarétturinn að bæði þeirri bók og Irpu hefur auk þess verið seldur til erlendra framleiðslufyrirtækja.

Dagar mínir í Morisaki-bókabúðinni
4.790 kr.Þegar Takako missir í einu vetfangi kærastann, vinnuna og trúna á sjálfa sig, býðst henni óvænt skjól hjá sérvitringnum frænda sínum í lítilli fornbókabúð í Tókýó. Jimbocho-hverfið iðar af lífi, ágeng kryddangan er í loftinu og neonljós borgarinnar flökta stöðugt en í Morisaki-bókabúðinni opnast annar heimur – kyrrlátur, hlýr og fullur af sögum. Þar hefst heillandi ferðalag sem á eftir að umbreyta lífi Takako.
Dagar mínir í Morisaki-bókabúðinni er seiðandi saga um vináttu sem sprettur á ólíklegustu stöðum, sérkennilega fastagesti og ómótstæðilega japanska menningu.
Satoshi Yagisawa hlaut verðskuldaða athygli fyrir þessa hrífandi sögu sem hefur komið út víða um heim og var kvikmynduð í Japan.- -43%

Allt frá hatti oní skó
Original price was: 8.690 kr..4.990 kr.Current price is: 4.990 kr..„Enginn veit hvað skáldsaga er …“ – Á þeim orðum danska skáldsins Pouls Borum hefst þessi saga og í takt við þau ögrar hún skilgreiningum, dansar á mörkum skáldskapar og minninga.
Hér segir frá Haraldi sem ætlar að verða skáld og með það að markmiði flytur hann til Kaupmannahafnar með kærustunni haustið 1979. Þar lendir hann strax í suðupotti menningarinnar og kynnist margs konar fólki, ekki síst listamönnum og skáldum, sem og nýjum skáldskap, viðhorfum og tónlist.
Frásögnin af því hvernig skáld verður til, mótast af umhverfinu og mótar sig sjálft – allt frá hatti oní skó – er einstaklega fjörug og teygir sig víða. Skrautlegar persónur, staðir, atvik og sögur lifna við svo úr verður litríkur vefur umleikinn órólegum anda níunda áratugarins þegar allt breyttist – og Haraldur varð skáld.
Einar Már Guðmundsson hefur áður boðið lesendum inn í sama sagnaheim, m.a. í verðlaunasögunni Englum alheimsins frá 1993 og þroskasögunni Passamyndum frá 2017.
- -31%

Jötunsteinn
Original price was: 6.990 kr..4.790 kr.Current price is: 4.790 kr..Jötunsteinn, steyptur hellusteinn sem til stendur að leggja í gangstétt, þýtur í átt að bílrúðu. Fyrir innan hana situr stórtækur verktaki. Úti stendur bugaður arkitekt. Tíminn silast áfram sekúndubrot fyrir sekúndubrot.
Þrjátíu ár eru síðan Andri Snær steig fram á ritvöllinn og skipaði sér í hóp eftirtektarverðustu höfunda landsins. Í þessari kröftugu nóvellu er Jötunsteini kastað inn í heita umræðu um fegurð í borg sem er smám saman að hjúpast svartri klæðningu og gráu þverliggjandi bárujárni. Sagan hefur þegar komið út á dönsku, ítölsku og ensku og hvarvetna hlotið frábærar viðtökur.

- -47%

Piparmeyjar: Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi
Original price was: 9.390 kr..4.990 kr.Current price is: 4.990 kr..Hvaða augum leit fólk piparmeyjar og hvaða augum litu þær sig sjálfar? Höfðu þær eitthvert raunverulegt val í lífinu? Og hvað með ástina?
Þetta fróðlega og aðgengilega skrifaða sagnfræðirit byggir á metnaðarfullri rannsókn á ævi og kjörum einhleypra, íslenskra kvenna á umbrotatímum í kvennasögunni þar sem sjónum er bæði beint að einstökum konum og samfélaginu öllu. Í aðalhlutverki er einstætt safn einkabréfa Reykjavíkurstúlkunnar Thoru Friðriksson.
Bréf Thoru veita einstæða og heillandi innsýn í líf skarpgreindrar konu með stóra drauma sem hún fékk ekki tækifæri til að láta rætast fyrr en á miðjum aldri, eftir að hún var búin að rækja skyldur sínar við stórfjölskylduna. Einnig bregða skrif hennar upp ljóslifandi mynd af hálfdanska smábænum Reykjavík skömmu fyrir aldamótin 1900, þar sem betri borgararnir drukku chocolade og champagne, brugðu sér á skauta á Tjörninni og tipluðu á spariskónum yfir moldarflagið fyrir framan nýbyggt Alþingishúsið.




