• Marginalía

    Marginalía

    Mörgum árum eftir að leiðir þeirra skildu hittast íslenskufræðingurinn Styrkár og blaðakonan Garún í Eddu, nýju heimili handritanna og húsi íslenskunnar.

    Ljós flökta, hurðir opnast og lokast án sýnilegrar ástæðu og ógnandi nærvera gerir vart við sig. Skyndilega eru Styrkár og Garún læst inni og verða að vinna saman til að komast aftur út. Áður en hryllingurinn nær yfirhöndinni þurfa þau að horfast í augu við fortíðardraug sem þau töldu sig hafa kveðið niður fyrir fullt og allt.

    Höfundar: Áslaug Ýr Hjartardóttir, Unnar Ingi Sæmundsson, Katrín Mixa og Vala Hauksdóttir.

    Ritstjórar: Anna Margrét Bragadóttir, Elías Rúni Þorsteins og Fjóla K. Guðmundsdóttir

    Bókin er samstarfsverkefni nemenda í ritlist Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Einlífi - ástarrannsókn
  • Megir þú upplifa

    Megir þú upplifa

    Í Vesturbænum býr breyskur maður í eilífri leit að fegurð lífsins um leið og hann tekst á við persónulegan harm. Hann þráir frelsi æskunnar og hina brothættu fullkomnun sem er rétt utan seilingar. Við fylgjum honum í gegnum ferðalög, endurminningar og hjákátleg samskipti við konurnar í lífi hans. Fylgjumst með honum gera tilraun til að vera guðseindin í heimi sem oft virðist svo glataður.

    Megir þú upplifa er óður til fegurðarinnar. Óður til borgarlífs. Óður til Evrópu. Og óður til skálds. Hún er tilraun til að milda hjörtu. Tilraun til að mála með litríkum breiðum penslum yfir gráan hversdagleika. Og tilraun til að fanga það besta sem lífið hefur upp á að bjóða.

    1.990 kr.
    Setja í körfu