• Ætíð minnast – Strákurinn, moldvarpan, refurinn, hesturinn og stormurinn

    Ætíð minnast – Strákurinn, moldvarpan, refurinn, hesturinn og stormurinn

    „Dag nokkurn munt þú líta til baka og gera þér grein fyrir hversu erfitt þetta var, og hversu vel þú stóðst þig.“

    6.390 kr.
    Setja í körfu
  • Hver á mig?

    Hver á mig?

    Einu sinni var lítill ljótur andarungi sem var alls engin önd. Nú hefur orðið annar ruglingur á fæðingardeildinni og íbúar hænsnakofans eru alveg að missa þolinmæðina yfir háfættum jörpum unga sem getur ekki fyrir sitt litla líf hagað sér eins og almennilegum kjúklingi sæmir.

    Hver á mig? er hugljúf barnabók um að finna sinn stað í lífinu og hvernig við eigum öll skilið að fá að vera eins og við erum.

    Harpa Rún og Jóhanna María kynntust í bókmenntafræði en hafa síðan fengist við ýmis ritstörf og myndlýsingar. Hér leiða þær í fyrsta sinn saman hesta sína í bók sem er ætlað að kynna börn og fullorðna fyrir heimi og orðaforða nútíma sveitalífs.

    5.190 kr.
    Setja í körfu
  • Síðustu dagar skeljaskrímslisins

    Síðustu dagar skeljaskrímslisins

    Árið sem Lilja fór vorum við eittþúsund sjöhundruð þrjátíu og fjögur og árið eftir eittþúsund sjöhundruð þrjátíu og þrjú. Enginn dó og enginn fæddist.
    Í dag erum við þrjúhundruð og eitt og öll gerum við fastlega ráð fyrir að halda áfram. Útlendingarnir eru ekki taldir með frekar en kettirnir og miðaldra og gömul látum við sem ekkert sé þó okkur fari fækkandi, þó einn og einn hverfi , en þegar það gerist er dauðinn jafn hefðbundinn og tilbreytingarlaus og veðrið.

    Mitt skjól er hér í litlu höfninni og á meðan hafstraumarnir villast undir iljunum stend ég við gömlu eldavélina, fylli belginn á Nóa af matarlykt og salta og sýð niður matarforðann sem fer í búrið bak við eldhúsið. Innan um næringuna er líka lífsviðurværið mitt rabarbarabruggið sem ég sel síðustu manneskjunni í heiminum sem er ekki sama um mig, Nínu á Skeljabarnum. Það eina sem ekki er ætt þarna er Polaroid ljósmyndin af sólgrettri Lilju sem hangir litverp í horninu á bak við baunapokana innst í búrinu, en ég á sjaldan erindi þangað.

    7.990 kr.
    Setja í körfu
  • Marginalía

    Marginalía

    Mörgum árum eftir að leiðir þeirra skildu hittast íslenskufræðingurinn Styrkár og blaðakonan Garún í Eddu, nýju heimili handritanna og húsi íslenskunnar.

    Ljós flökta, hurðir opnast og lokast án sýnilegrar ástæðu og ógnandi nærvera gerir vart við sig. Skyndilega eru Styrkár og Garún læst inni og verða að vinna saman til að komast aftur út. Áður en hryllingurinn nær yfirhöndinni þurfa þau að horfast í augu við fortíðardraug sem þau töldu sig hafa kveðið niður fyrir fullt og allt.

    Höfundar: Áslaug Ýr Hjartardóttir, Unnar Ingi Sæmundsson, Katrín Mixa og Vala Hauksdóttir.

    Ritstjórar: Anna Margrét Bragadóttir, Elías Rúni Þorsteins og Fjóla K. Guðmundsdóttir

    Bókin er samstarfsverkefni nemenda í ritlist Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Áður en ég brjálast – Játningar á miðjunni

    Áður en ég brjálast – Játningar á miðjunni

    Kona á miðjum aldri flytur til Kalima þar sem ryk og sandur frá Sahara þyrlast um. Heimsmyndin er að molna og hún raðar saman minningarbrotum sem hafa umbreytt tilverunni. Dimmblár drykkfelldur hestur verður á vegi hennar og fylgir áleiðis að hvörfum.

    Bókin er feminískt skáldverk um ástir, ólík breytingaferli og lífsreynslu róttækrar móður sem leitar heim í skáldskapinn þar sem goðsagnaverur vappa um. Úr verður mósaík minninga, áleitin samtímasaga sem er full af óslökkvandi ævintýraþrá, næmi og tragikómískum galsa.

    4.390 kr.
    Setja í körfu