• Það talar í trjánum
  • -28% Flóttinn á norðurhjarann

    Flóttinn á norðurhjarann

    Það ríkir hungursneyð á Íslandi í kjölfar eldgoss. Solla er nýorðin tólf ára þegar mamma hennar segir henni að til að lifa af þurfi þær að yfirgefa kotið sitt. Solla getur ekki ímyndað sér hvert þær geti flúið. Þær eiga engan að nema hvor aðra. Hvern ætlar mamma að biðja um hjálp? Og hvaða leyndarmál geymir hún sem Solla má ekki vita?

    Veturinn er nýbyrjaður þegar þær ösla af stað í norðurátt. Þær eiga langa og lífshættulega ferð fyrir höndum og á áfangastað bíða nýjar áskoranir og óvæntir atburðir.

    Flóttinn á norðurhjarann er fyrsta barnabók Nönnu Rögnvaldardóttur en fyrir hana voru henni veitt Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2025. Bókina byggir hún að hluta á raunverulegum atburðum og aðstæðum fólks á árunum eftir Skaftárelda. Áður hefur Nanna skrifað vinsælar sögulegar skáldsögur fyrir fullorðna auk fjölda matreiðslubóka.

    Original price was: 6.390 kr..Current price is: 4.590 kr..
    Setja í körfu
  • -30% Sýnir völvunnar: Goðheimar #15

    Sýnir völvunnar: Goðheimar #15

    Sýnir Völvunnar er fimmtánda og síðasta bókin í bókaflokknum vinsæla um Goðheima þar sem sögur af norrænu goðunum sagðar á skýran og skemmtilegan hátt, kryddaðar óborganlegum húmor.

    Fimbulvetur ríkir í Ásgarði og Fenrisúlfur er kominn aftur á kreik. Þegar æsir komast að því að jötnar standa að baki þessum eilífðarvetri rennur upp fyrir þeim að Ragnarök eru í nánd og ræsa þarf út her einherja. Loki er sendur til að kljást við úlfinn en fær óumbeðna aðstoð frá Röskvu, sem sýnir á sér nýja og afar óvænta hlið.

    Original price was: 4.990 kr..Current price is: 3.490 kr..
    Setja í körfu
  • Í sumardölum

    Í sumardölum

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Þetta er þitt líf
  • Væringinn mikli – Ævi og örlög Einars Benediktssonar
  • Einar Benediktsson – Ævisaga III
  • Gata bernskunnar

    Gata bernskunnar

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Punktur punktur komma strik

    Punktur punktur komma strik

    Pétur Gunnarsson er fæddur í tvíburamerkinu 15. júní 1947. Hann byrjaði ungur að skrifa en ekki er að sjá að honum hafi farið mikið fram. Ljóðabókin „Splunkunýr dagur“ sem kom út 1973 var afleit. Hér birtir hann skáldsöguna „Punktur punktur komma strik“ sem hann hefur lesið úr með Listaskáldunum vondu og er eins víst að megninu sé stolið úr óvæntum áttum. Pétur reynir mikið að vera fyndinn og mest er það háð og grátt gaman um fólk sem hefur reynst honum vel og lýsir það innrætinu. Þó kastar tólfunum þegar höfundur byrjar að klæmast og eru oft áhöld um hvort hann sé með öllum mjalla, en þar sem virkilega er stungin tólg, bendir flest til að Pétur hafi prófað sóðaskapinn á sjálfum sér og sést af þessu hvernig maðurinn er.

    Gylfi Gíslason bogmaður, fæddur 19. desember 1940, myndskreytir bókina og er ljótt af honum að bæta þannig gráu ofan á svart.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Leitin að fjarskanum
  • Haust í Heiðmörk

    Haust í Heiðmörk

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Úr hugskoti

    Úr hugskoti

    1.490 kr.
    Setja í körfu