
Þjóðerni í þúsund ár?
1.290 kr.Í þessari bók takast ungir fræðimenn af ýmsum sviðum hug- og félagsvísinda á við spurningar sem tengjast íslensku þjóðerni og sögu þess. Meðal þess sem tekið er til athugunar eru sjálfsmyndir fyrir daga nútíma þjóðernishyggju, mótun þjóðernis og hugmyndir Íslendinga um stöðu sína meðal þjóða heimsins. Hverjir tilheyra hinni íslensku þjóð og hverjir ekki? Eru það ef til vill huldufólk eða vestfirskir sérvitringar sem eru hin eina sanna íslenska þjóð?


Leikandinn: Greinar um menntun ungra barna
1.290 kr.Menntun ungra barna hefur verið í brennidepli víða um heim á undanförnum áratugum. Aukin áhersla á menntun yngstu borgaranna skýrist m.a. af niðurstöðum fjölda vísindarannsókna sem sýna verulegan ávinning af góðri menntun þeirra, ekki einungis fyrir þau sjálf heldur einnig fyrir samfélagið.
Þessi bók inniheldur 18 fræðigreinar sem hafa að geyma niðurstöður rannsókna um menntun ungra barna frá ýmsum sjónarhornum. Fjallað er um réttindi og sjónarmið barna, mikilvægi leiks og starfsaðferðir með ungum börnum. Jafnframt er rannsóknum á samfellu í námi barna gerð skil. Sjónum er einnig beint að börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn og mikilvægi fjölbreytilegra kennsluhátta fyrir öll börn. Þá er greint frá rannsóknum sem varpa ljósi á reynslu og sjónarmið foreldra ungra barna.
Bókinni er ætlað að mæta brýnni þörf fyrir íslenskt efni um menntun ungra barna handa kennurum, tómstundafræðingum, þroskaþjálfum og öðru fagfólki á sviði uppeldis- og menntavísinda. Þess er einnig vænst að bókin nýtist háskólanemum sem leggja stund á þessar fræðigreinar. Jafnframt á bókin erindi við þá sem móta stefnu í málefnum barna og aðra sem láta sig menntun yngstu borgaranna varða.

