
Norður í svalann
1.290 kr.Sigurður Pálsson námstjóri sendir hér frá sér fyrstu bók sina ef frá eru taldar kennslubækur, m. a. í umferðarfræðum og kristnum fræðum. Hann er fæddur í Reykjavík árið 1936, lauk kennaraprófi 1957 og BA-prófi í kristnum fræðum og uppeldisfræði 1978. Sigurður stundaði kennslu um margra ára skeið og var um tíma skrifstofustjóri Ríkisútgáfu námsbóka, en hefur frá 1977 verið námstjóri i kristnum fræðum. Kona hans er Jóhanna G. Möller og hefur hún aðstoðað við gerð þessarar bókar.
Norður í svalann hefur að geyma viðtöl við fimm aðflutta Íslendinga. Þeir eru: Baltasar B. Samper listmálari, Ester Gunnarsson hjúkrunarfræðingur og húsmóðir, Carl Billich píanóleikari, Rut Magnúsdóttir organisti og húsmóðir og Einar Farestveit forstjóri. Viðtölin skráir Sigurður Pálsson námstjóri og segir hann m. a. svo í formála sínum að bókinni:
Ekki veit ég hvort Íslendingar eru forvitnari um annarra hagi en almennt gerist. Ég veit heldur ekki hvort þeir eru forvitnari um álit annarra á landi og þjóð en tíðkast meðal þeirra sem annars staðar búa. Hitt veit ég, að þeir eru forvitnir um hvort tveggja. Þess vegna tók ég þetta verk að mér. Það myndi væntanlega svala forvitni minni og annarra, en ekki aðeins það, heldur gefa mér tækifæri til að gleðjast yfir nýjum kynnum og rifja upp gömul og deila þeirri gleði minni með öðrum.
Ég kaus að skrifa í fyrstu persónu og láta viðmælendur mína hafa orðið án athugasemda eða spurninga af minni hálfu. Fingraför min sjást á framsetningunni en inntakið er þeirra. Þau opnuðu mér dyr, rifjuðu upp fyrir mig bernsku og æsku, áhrifavalda í lífi sínu, aðdragandann að komu sinni til Íslands, ástæður fyrir þvi að þau settust hér að fyrir fullt og allt og kynni sín af landi og lýð. Ég þakka þeim elskusemina og vona að ég hafi reynst trausts þeirra verður.
