• Hjartslátturinn hennar Lóu

    Hjartslátturinn hennar Lóu

    Í dag fær Lóa að gera öll sín uppáhalds prakkarastrik – og fyrir því er alveg sérstök ástæða.

    Dýralæknirinn sagði nefnilega að nú væri lítið eftir í tímaglasinu hennar. Því fær Lóa heilan dag til að skapa minningar með bestu vinkonu sinni, minningar sem munu lifa eftir að Lóa er farin.

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • Jólabókaormurinn

    Jólabókaormurinn

    Þið kannist við jólaköttinn en hafið þið heyrt um jólabókaorminn? Hann er nefnilega alveg jafnslæmur nema hann étur þá sem ekki hafa fengið bók í jólagjöf!

    Systkinin Hafdís og Tómas þekkja söguna en hafa ekkert að óttast, því í þorpinu þeirra gefa allir bækur um jólin.

    En hefur einhver séð jólabókaorminn?

    Er hann til í alvörunni?

    Er þetta ekki örugglega bara þjóðsaga?

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • SkuldaDagur

    SkuldaDagur

    Blóðþyrstu unglingarnir Dagur og Ylfa snúa aftur í æsispennandi, bráðfyndinni og sjóðheitri sögu. Hver er dr. Argus og hvað hafa dularfull samtök lækna og vísindamanna í hyggju fyrir Norðurlöndin? Getur Dagur hamið hungrið nógu lengi til þess að bjarga Ylfu? – og af hverju þarf hann alltaf að fá standpínu á verstu mögulegu stundu?

    Bókin er framhald hrollvekjuástarsagnanna VeikindaDags og NammiDags.

    Vinsamlegast hafið í huga að bókin er fyrir unglinga og eldri lesendur en hvorki ætluð börnum né viðkvæmum sálum.

    Höfundarnir hafa hlotið verðskuldað lof lesenda og gagnrýnenda og hafa fengið bæði verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín.

    5.890 kr.
    Setja í körfu
  • Dreim: Dýr móðurinnar

    Dreim: Dýr móðurinnar

    Dýrin beruðu tennurnar gegn þeim sem sóttu að barninu við trjástofninn. Hreint, tært og hjalandi saug það fræ hennar á meðan laufkrónurnar vögguðu því í svefn. Hún sendi það mönnum. Barnið sitt. Enn falla tár hennar yfir regnskóginn – síðla hvern dag.
    – Sagan af Mtoto Ngala.

    Draupnir, máttugasta vera Dreim, er fallinn. Myrkrið vex beggja vegna skilanna og dreimfarar úr Fósturdal hafa örlög heimanna í höndum sér. Skömmu eftir komuna til Ngala, berst spádómur Draupnis. Von er á hinum mikla mætti og von ljóssins: Mtoto Ngala.

    Á meðan heift Alex hrekur hópinn í ógöngur er Daríus hvergi óhultur fyrir myrkrinu sem teygir sig á milli heima og þegar Bella slítur sig úr fjötrum reynist ást hennar á Staurian ógn við líf þeirra beggja. Þá er ónefnt litla dýrið sem enginn gefur gætur í allri óreiðunni. Það sem síst skyldi gleymast.

    5.990 kr.
    Setja í körfu
  • Silfurberg

    Silfurberg

    Þegar Berglind fer í útilegu með vinkonum sínum órar hana ekki fyrir því að duldir kraftar hennar muni vakna úr dvala og leiða hana inn í framandi veröld.

    Í Hásteinum, höfuðborg Álfheima, búa ljósálfarnir sig undir stríð. Svartálfadrottningin hefur ráðist á hvert vígið af öðru og nú steðjar hættan einnig að Mannheimum. Völva álfanna leitar aðstoðar meðal mannfólks í fyrsta skipti í aldaraðir og Berglind finnur sig knúna til að svara kallinu. Ljósálfarnir bjóðast til þess að þjálfa þær manneskjur sem búa yfir yfirnáttúrulegum hæfileikum og Berglind kemst að því að sýnir hennar gætu bjargað þeim öllum.

    Það eru þó ekki allir jafn hrifnir af samstarfi álfa og manna og Berglind þarf að átta sig á því hverjum er treystandi.

    5.990 kr.
    Setja í körfu
  • Paradísareyjan

    Paradísareyjan

    Eyjuhátíðin er haldin árlega en í þetta sinn fer allt úr böndunum … Vinirnir Freyja og Hallgrímur eru yfir sig spennt og mæta niður á bryggju að taka á móti gestunum. En þeir eru fleiri en vanalega og líka dónalegri! Þegar Freyja og Hallgrímur fara að rannsaka málið komast þau að því að fæstir eru komnir til að taka þátt í hátíðinni.

    Af hverju kom þetta fólk á eyjuna?

    Hefur það eitthvað að gera með nýja bæjarstjórann?

    … og hvað er eiginlega Paradísareyjan?

    Paradísareyjan er þriðja bók Emblu Bachmann. Fyrstu tvær: Stelpur stranglega bannaðar (2023) og Kærókeppnin (2024) voru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Embla hefur líka umsjón með Krakkafréttum og útvarpsþáttunum Hvað ertu að lesa? Árið 2024 hlaut hún Vorvinda IBBY á Íslandi fyrir framlag sitt til barnamenningar.

    Bókin er myndlýst af hinni hæfileikaríku og margverðlaunuðu Bergrúnu Írisi, rithöfundi og teiknara

    5.690 kr.
    Setja í körfu
  • Njála hin skamma

    Njála hin skamma

    Þessi myndabók byggist á einni ástsælustu Íslendingasögunni, Brennu-Njáls sögu, sem rituð var seint á þrettándu öld en lýsir atburðum sem gerðust þrjú hundruð árum fyrr. Njáls saga er æsispennandi örlagasaga sem hverfist m.a. um ást, öfund, vinskap, svik, forlagatrú, hefnd, hetjudáðir, sæmd, lagaklæki og sættir.

    Hér hefur listakonan og rithöfundurinn Kristín Ragna Gunnarsdóttir dregið Njálu saman í stuttu máli og myndum til að fólk geti kynnst nokkrum af litríkum persónum hennar og áttað sig á þræði sögunnar í grófum dráttum.

    5.690 kr.
    Setja í körfu
  • Grár köttur, vetrarkvöld

    Grár köttur, vetrarkvöld

    Hún strýkur leðrinu og áttar sig á því hvað það er orðið kalt. Hún verður að ræsa bílinn. Það er fyrsta skrefið.

    Hitað sæti gæti breytt öllu. Ef hún gerir það ekki kemst hún aldrei héðan. Og varla eru til verri örlög en að sitja að eilífu fastur á frosnu bílastæði úti á Seltjarnarnesi?

    Til hvers er lífið þegar kötturinn manns er týndur? Slík spurning gæti virst léttvæg, en þegar öllu er á botninn hvolft er þá eitthvað mikilvægara en að finna ylinn af öðru lífi?

    Að vita af einhverju sem undirstrikar eigin mannleika? Eitthvað sem jafnvel mætti kalla ást?

    Grár köttur, vetrarkvöld er loðin lýsing á þeirri upplifun að upplifa. Að þrá og þurfa og þjást og þakka fyrir að vera til. Allt eftir aðstæðum. Á meðan skuggarnir lengjast og rotturnar fara á stjá…

    6.490 kr.
    Setja í körfu
  • Bekkurinn minn - Vinabók - svört

    Bekkurinn minn – Vinabók – svört

    Bekkurinn minn – Vinabók er um þig og vini þína: Veistu hvaða litir, bækur, bíómyndir og lög eru í uppáhaldi hjá vinum þínum?

    Hvenær eiga þeir afmæli og í hvaða stjörnumerki eru þeir?

    Hvort finnst þeim betra, ís eða nammi, steikt skordýr eða prumpusamloka?

    Það er aðeins ein leið til að komast að því – biddu vini þína, bekkjarfélaga, liðsfélaga, frændsystkini eða hverja sem þér dettur í hug, um að skrifa svörin í þína bók og þú skrifar í þeirra!

    3.490 kr.
    Setja í körfu
  • Amelía og Óliver

    Amelía og Óliver

    Amelía og Óliver er fyrst og fremst hugljúf saga um vináttu og leikgleði. Að auki þjálfar hún orðaforða með orðum sem börn heyra síður í töluðu máli en eru mikilvæg þegar kemur að því að lesa sér til gagns. Systkinin Amelía og Óliver eru úti að leika og hitta tröll. Fyrst verða þau hrædd en sjá svo að tröllið vill bara leika.

    Höfundar bókarinnar eru Kristín Björg Sigurvinsdóttir rithöfundur og Sigrún Alda Sigfúsdóttir talmeinafræðingur. Herborg Árnadóttir er myndhöfundur og hönnuður bókar og kápu.

    Fremst í bókinni eru leiðbeiningar um hvernig lestur bókarinnar nýtist sem best og á hverri opnu eru tekin fyrir eitt til tvö orð sem eru sérstaklega útskýrð. Aftast í bókinni er svo skemmtilegt verkefni þar sem hægt er að rifja upp orðin og fletta þeim upp í bókinni.

    Markmið bókarinnar er fyrst og fremst að gleðja unga lesendur og aðstandendur þeirra en samhliða því að kenna ný orð í gegnum lestur og leik. Bókin hentar fyrir breiðan aldurshóp þar sem hún hentar vel til upplestur en er jafnframt aðgengilegt lesefni fyrir börn sem eru sjálf byrjuð að lesa.

    Hægt er að fræðast meira um bókina og höfunda á ordabrunnur.is.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Rauði fiskurinn

    Rauði fiskurinn

    Simbi litli er eini rauði fiskurinn í himinbláu hafi. Hann leggur upp í ferðalag í von um að finna fleiri fiska sem eru eins og hann. Lesandinn fylgir  Simba litla um heit höf og köld – stundum er hann hræddur, stundum hrifinn, en alltaf vongóður um að ná markmiði sínu: að finna lítinn, rauðan leikfélaga og höndla hamingjuna.

    Rauði fiskurinn eftir Rúnu, Sigrúnu Guðjónsdóttur, kom fyrst út árið 1972 og síðan 1988 með þeim myndum sem þessi útgáfa skartar. Í  sögunni renna texti og myndir áreynslulaust saman í eina heild sem er í senn spennandi og hrífandi. Hér gefst nýjum kynslóðum tækifæri til að kynnast þessari sígildu perlu íslenskra barnabókmennta.

    Rauði fiskurinn

    Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur myndsköpun Rúnu fundið sér farveg innan leirlistar, bókskreytinga, málverks og hönnunar. Hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar í gegnum tíðina, svo sem Fálkaorðuna og Íslensku hönnunarverðlaunin.

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • Bekkurinn minn 9 - Björgum móanum!

    Bekkurinn minn 9 – Björgum móanum!

    Björgum móanum! Fjallar um Wiktoriu og besta leiksvæðið í bænum. Börnin frétta af því að það eigi að byggja risastóra blokk í miðju hverfinu. Það má ekki gerast! Þau taka höndum saman og mótmæla.

    Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.

    3.990 kr.
    Setja í körfu