
Mynd örlaganna
1.290 kr.Isabel Allende hefur nú skrifað sjálfstætt framhald hinnar geysivinsælu sögu, Dóttir gæfunnar, og myndar þá þessi bók miðsöguna í þríleik sem endar á Húsi andanna, fyrstu bók Allende. Sú sem hér segir frá er Aurora del Valle, barnabarn Elísu Sommers og hins kínverska læknis Taos Chi’en. Sagan gerist bæði í San Francisco og Chile og við sögu koma meðal annarra undurfögur en ógæfusöm móðir Auroru, gerspilltur og lífsleiður faðir hennar, stórbrotin föðuramma og í fyllingu tímans eiginmaður sem býr yfir leyndarmáli og er þá fátt eitt talið af litríkum persónum sem fylla hér blaðsíðurnar eins og í fyrri bókum höfundar. Hér er sögð margþætt saga af stórbrotnum örlögum, ósviknum ástríðum og spaugilegum atvikum með samblandi af heitri samúð og stríðnisbliki í auga. Kolbrún Sveinsdóttir þýddi.
