• Hin ótrúlega pílagrímsganga Harolds Fry
  • Bréfið

    Bréfið

    Tina Craig þráir að losna frá ofbeldisfullum eiginmanni sínum. Hún vinnur myrkranna á milli til að safna fé svo að hún geti farið frá honum og er auk þess í sjálfboðavinnu í nytjaverslun til að losna að heiman. Hún finnur gamalt bréf í vasanum á notuðum jakkafötum í búðinni, umslagið er enn óopnað. Tina opnar bréfið og les það – sú ákvörðun á eftir að breyta lífi hennar …

    Billy Stirling veit að hann hagaði sér eins og bjáni en vonast til að geta bætt fyrir það. Þann 4. september 1939 skrifar hann bréfið sem hann vonar að muni breyta framtíð hans. Það rætist – á fleiri vegu en hann hefði getað ímyndað sér …

    Bréfið segir sögu tveggja kvenna sem fæðast með nokkurra áratuga millibili en engu að síður liggja leiðir þeirra saman og kvalræði annarrar þeirra verður hinni til bjargar …

    Kathryn fékk Prima Magazine verðlaunin fyrir bestu bók ársins 2019.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Hinn litlausi Tsukuru Tazaki og pílagrímsár hans
  • Einu sinni var í austri

    Einu sinni var í austri

    Uppvaxtarsaga kínverska rithöfundarins og kvikmyndagerðarkonunnar Xialou Guo (f. 1973) sem búsett hefur verið í Bretlandi í rúman áratug. Bók sem kölluð hefur verið Villtir svanir nýrrar kynslóðar.

    Hvernig er að vera listamaður þar sem ritskoðun drepur allan frumleika og það eina sem býðst er að skrifa léleg handrit að sápuóperum; hvernig er að vera kona í landi þar sem stúlkubörnum er ítrekað drekkt við fæðingu og kynferðisleg misnotkun er daglegt brauð; hvernig er hægt að elska þegar manni hefur aldrei verið kennt það.

    Xiaolu Guo heimsótti Ísland haustið 2018 við mikinn fögnuð lesenda. Auk uppvaxtarsögunnar hefur komið út skáldsagan Hnitmiðuð kínversk-ensk orðabók fyrir elskendur eftir sama höfund á íslensku. Mögnuð verk eftir einstakan listamann.

    1.290 kr.
    Setja í körfu