• Fellur mjöll í sedrusskógi

    Fellur mjöll í sedrusskógi

    ÞAÐ ER ÁRIÐ 1954 og sögusviðið er eyjan San Piedro úti fyrir ströndum Washingtonfylkis í Bandaríkjunum. Þar búa sjómenn og bændur, bæði af evrópsku og japönsku bergi brotnir og þarna mætast straumar úr ólíkum menningarheimum.

    Fiskimaðurinn Carl Heine finnst látinn við dularfullar kringumstæður og böndin berast fljótlega að Kabuo Miyomoto sem er ákærður fyrir morð. Söguþráðurinn spinnst í kringum réttarhöldin yfir Kabuo sem ýfa upp vantraust og fordóma margra eyjarbúa gagnvart fólki af japönskum ættum eftir síðari heimsstyrjöld. Og æskuástin rifjast upp fyrir Ishmael Chambers, ritstjóra fréttablaðs eyjarinnar.

    David Guterson kann þá list að heilla lesendur sína. Hann magnar upp andrúmsloftið á eyjunni San Piedro svo að persónurnar og samskipti þeirra, náttúran og veðrið, sagan öll, verða ljóslifandi í huga lesenda og grípa þá sterkum tökum.

    Fellur mjöll í sedrusskógi hefur farið sigurför um heiminn á undanförnum árum og verið þýdd á fjölda tungumála.

    Árni Óskarsson þýddi.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Laugardagur

    Laugardagur

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Vélar eins og ég

    Vélar eins og ég

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Miðnæturbörn

    Miðnæturbörn

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Hnotskurn

    Hnotskurn

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Barnið og tíminn

    Barnið og tíminn

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Vernon G. Little

    Vernon G. Little

    Vernon G. Little er 15 ára drengur sem búsettur er í bandarískum smábæ og á allt annað en auðvelt með að fóta sig í tilverunni. Hann lumar líka á allskyns mismerkilegum leyndarmálum, eins og kemur á daginn þegar yfirvöld og fjölmiðlar fá áhuga á honum í framhaldi af blóðugum fjöldamorðum í skólanum hans. Fyrr en varir er Vernon flæktur í þéttan lygavef sem torvelt reynist að losna úr.

    D.B.C Pierre hlaut, flestum að óvörum, Bookerverðlaunin fyrir þessa frumraun sína á sviði skáldskapar árið 2003. Síðan þá hefur bókin verið þýdd á fjölda tungumála og hvarvetna hlotið frábærar viðtökur. Hún er gegnsýrð af kolsvörtum húmor og nístandi kaldhæðni, en birtir jafnframt nýstárlega sýn á veruleika almennings á Vesturlöndum.

    1.290 kr.
    Setja í körfu