Skálda er besta bókabúðin í Reykjavík 2026

The Reykjavík Grapvine gefur á hverju ári út sérrit þar sem sérfræðingar velja það besta sem borgin hefur upp á að bjóða. Skálda hlaut þessa viðurkenningu fyrst í fyrra eftir aðeins fjóra mánuði í rekstri og á dögunum var tilkynnt að Skálda heldur titlinum sem besta bókabúðin í Reykjavík.

Þetta er gríðarlegur heiður fyrir litla, sjálfstæða bókabúð og mikil hvatning til þess að halda áfram að bjóða upp á sérvaldar gæðabókmenntir og skapa rými fyrir samfélag bókaorma.

Við erum innilega þakklát öllum vinum Skáldu sem heimsækja okkur, spjalla um bækur, mæta á viðburði og styðja við sjálfstæðar bókabúðir – án ykkar væri Skálda ekki best!