
Gleðileg jól – Þín eigin saga #12
3.690 kr.Það er desember og þú ert í jólaskapi. Þig langar að renna þér á snjóþotu svo þú arkar upp í fjall. Í stórum helli sitja þrettán furðulegir kallar við varðeld og í myrkrinu glóa risastór kattaraugu. Þú ræður hvað gerist næst! Í tólftu bókinni í þessum vinsæla bókaflokki spinnur Ævar Þór þráð úr bók sinni Þín eigin þjóðsaga.

Draugagangur og derby
4.490 kr.Eyvör og Milena byrja að æfa glænýja íþrótt; roller derby!
Æfingarnar breytast þó í rúllandi ráðgátu þegar námskeiðinu er aflýst! Dularfullir atburðir í hjólaskautahöllinni gera það að verkum að það verður að loka henni. Með hjálp nýrra vina taka Eyvör og Milena málin í sínar hendur og reyna að leysa ráðgátuna.
